Hefur þú ástríðu fyrir hjúkrun?
Hefur þú ástríðu fyrir hjúkrun?
Heilsugæslan Efstaleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífeldri þróun. Á stöðinni starfa, auk lækna, hjúkrunarfræðinga og ritara, sálfræðingar, félagsráðgjafi, sjúkraþjáfarar, lyfjafræðingur og sjúkraliði. Mikil áhersla er lögð á samvinnu allra fagstétta til að finna sem farsælasta lausn mála með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi. HH Efstaleiti leggur því mikla áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu.
Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarmóttakan er mjög víðtæk, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Við erum með móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri, sinnum bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku.
Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Einar Þór Þórarinsson
-
[email protected]
-
513-5350
Sólveig Jóhannsdóttir
-
[email protected]
-
513-5350