Eftirlitsdýralæknir í Suðvesturumdæmi
Eftirlitsdýralæknir í Suðvesturumdæmi
Matvælastofnun óskar að ráða eftirlitsdýralækni til afleysingastarfa til 31. desember 2023 í Suðvesturumdæmi með aðsetur í Hafnarfirði. Möguleiki er á framlengingu eftir þann tíma. Um er að ræða 50-100% starf og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst. Í Suðvesturumdæmi starfa sex eftirlitsdýralæknar, þrír dýraeftirlitsmenn, fjórir eftirlitsmenn með matvælaframleiðslu og héraðsdýralæknir. Starfið er fjölbreytt og eftirlitsdýralæknir vinnur í nánu samstarfi við aðra starfsmenn skrifstofunnar en hefur jafnframt umsjón með tilteknum verkefnum samkvæmt starfslýsingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum um dýr og matvæli.
Helstu verkefni eru eftirlit með:
- fjölbreyttri frumframleiðslu
- gæludýrastarfsemi
- tilraunadýrastarfsemi
- starfsemi tengd hrossum svo sem hrossaútflutningi, reiðskólum og hestaleigum
- heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum
- velferð dýra, gæludýra sem og búfjár
Jafnframt felast í starfinu sýnatökur og samskipti við opinberar stofnanir.
Hæfniskröfur
- Dýralæknismenntun og dýralæknisréttindi á Íslandi
- Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Bílpróf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 31. maí 2023. Ferilskrá, prófskírteini og dýralæknisleyfi skulu fylgja umsókn. Öllum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ellen Ruth Ingimundardóttir, héraðsdýralæknir, [email protected] í síma 792-0944. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ellen Ruth Ingimundardóttir, Héraðsdýralæknir - [email protected] - 792-0944