Eftirlitsdýralæknir í Suðausturumdæmi
Eftirlitsdýralæknir í Suðausturumdæmi
Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Suðausturumdæmi með aðsetur á Selfossi. Um er að ræða fullt starf í metnaðarfullu teymi sem sinnir fjölbreyttu eftirliti á Suður- og Suðausturlandi og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla og dýravelferðar, heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar.
Hæfniskröfur
- Dýralæknismenntun og dýralæknisréttindi á Íslandi
- Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Vilji til teymisvinnu
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Bílpróf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Jarle Reiersen héraðsdýralæknir á netfanginu [email protected] eða í síma 530 4800. Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2023
Nánari upplýsingar veitir
Jarle Reiersen - [email protected] - 5304800