Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis á röntgendeild Landspítala. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Upphaf starfs er samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn sérfræðilæknisstörf á röntgendeild Landspítala
- Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
- Kennsla og leiðsögn fyrir heilbrigðisstarfsmenn
- Vísindarannsóknir tengdar sérgreininni
- Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
- Þátttaka í vöktum sérfræðilækna
Hæfniskröfur
- Íslenskt sérfæðileyfi í myndgreiningu
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af röntgenlækningum
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um: - Fyrri störf, menntun og hæfni - Félagsstörf og umsagnaraðilar
Nauðsynleg fylgiskjöl: - Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum - Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfu - Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að
Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed - Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið - Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, læknir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Maríanna Garðarsdóttir - [email protected]