Hoppa yfir valmynd
Kennsla og rannsóknirNorðurlandHáskólinn á Akureyri

Aðjúnkt í samfélagsgeðhjúkrun

Aðjúnkt í samfélagsgeðhjúkrun

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar tímabundna 49% stöðu aðjúnkts við námsbraut fagnáms sjúkraliða með áherslu á kennslu á kjörsviði samfélagsgeðhjúkrunar. Leitað er að einstaklingi með góða þekkingu á sviði samfélagsgeðþjónustu. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér að hafa umsjón með námskeiðum í samfélagsgeðhjúkrun, fræðilega og klíníska kennslu og stjórnun við námsbraut fagnáms sjúkraliða. Aðjúnktsstaðan er án rannsóknarskyldu. Næsti yfirmaður er deildarforseti Framhaldsnámsdeildar Heilbrigðis, viðskipta- og raunvísindasviðs. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt frá og með 1. september 2023. Ráðning er tímabundin til tveggja ára.  

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða. Námið er 60 ECTS einingar, tekið á tveimur árum og gert er ráð fyrir að nemendur starfi við sitt kjörsvið á námstímanum. Starfinu fylgir möguleiki á þátttöku í þróunarstarfi og uppbyggingu fagmenntunar heilbrigðisstétta til framtíðar auk kennslu í  samfélagsgeðhjúkrun, öldrunar- og heimahjúkrun, klínískri kennslu á vettvangi og í hermisetri. 

Hæfniskröfur

  • Grunnmenntun í heilbrigðisvísindum er krafa. 
  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er krafa. 
  • Að minnsta kosti 2 ára klínísk reynsla á heilbrigðisstofnun og virkni í klínísku starfi er krafa.  
  • Að minnsta kosti 2 ára starfsreynsla á sviði samfélagsgeðþjónustu er krafa.  
  • Starf við samfélagsgeðþjónustu meðfram aðjúnktsstöðunni er krafa. 
  • Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu er kostur.  
  • Sjúkraliðanám og viðbótarnám sjúkraliða er kostur.  
  • Reynsla af háskólakennslu og fræðilegri og klínískri leiðbeiningu á háskólastigi er kostur.  
  • Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla þekkingu.  
  • Gott vald á íslensku og eða ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli. 

 

Umsókn skal fylgja:  

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.  
  • Staðfest afrit af prófskírteinum á íslensku eða ensku.  
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.  
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.  

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar fagnáms sjúkraliða við Háskólann á Akureyri. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 387/2009. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. 

Starfshlutfall er 49%

Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þorbjörg Jónsdóttir, deildarforseti - [email protected] - 4608477
Hafdís Skúladóttir, námsbrautarstjóri - [email protected] - 4608456

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum