Skjalastjóri
Skjalastjóri
Umhverfisstofnun sinnir fjölbreyttri þjónustu og ákvarðanatöku er varða umhverfisgæði og náttúruvernd. Innri þjónusta stofnunarinnar gegnir lykilhlutverki í stuðningi við starfsemina. Stafræn þróun er áhersluverkefni og við tökum fagnandi á móti nýju fólki sem hefur þekkingu og áhuga á stafrænum lausnum.
Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi. Við störfum í teymum, vítt og breitt um landið eftir vottuðum gæðakerfum. Vinnuvikan er 36 stundir til reynslu. Við búum yfir mikilli sérfræðiþekkingu og höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun. Starfsmannafélagið er öflugt og við fylgjum að sjálfsögðu metnaðarfullri umhverfisstefnu sem hjálpar okkur að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum.
Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf skjalastjóra í teymi gæða, gagna og stafrænnar þróunar. Teymið er nýtt og spennandi þar sem áhersla er lögð á þjónustu og samvinnu. Í undirbúningi er samstarf við aðrar stofnanir sem miðar að frekari uppbyggingu og framþróun í skjalamálum. Starf skjalastjóra felst í umsjón með skjalavistunarkerfi stofnunarinnar og þróun skjalamála til framtíðar.
Hvar má bjóða þér að vinna?
Umhverfisstofnun starfar á níu starfsstöðvum um landið. Valið stendur um Hellissand, Patreksfjörð, Ísafjörð, Akureyri, Mývatn, Egilsstaði, Hellu, Vestmannaeyjar og Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag og umsjón með skjalamálum
- Þróun og eftirfylgni á skjalastjórnun og verklagi við skjalastjórnun
- Móttaka innsendra erinda og skráning í skjalavistunarkerfi
- Umsjón með réttri skráningu útsendra bréfa í skjalavistunarkerfi
- Frágangur og skil rafrænna gagna og pappírs til Þjóðskjalasafns Íslands
- Þróun notendahandbókar og fræðslu um skjalamál
Hæfniskröfur
- Háskólagráða í upplýsingafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Hæfni til að vinna með stafrænar lausnir
- Þekking eða reynsla af notkun skjalastjórnunarkerfa er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Þekking á gæðastjórnun kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Haldbær þekking á einu Norðurlandamáli er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Næsti yfirmaður skjalastjórans er Garðar Svavar Gíslason gæðastjóri sem veitir nánari upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 591 2000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að skjalastjóri geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Garðar Svavar Gíslason, gæðastjóri
-
[email protected]
-
5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem, mannauðsstjóri
-
[email protected]
-
5912000