Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaNorðurlandSjúkrahúsið á Akureyri

Klínískur yfirnæringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri

Klínískur yfirnæringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri

Laus er til umsóknar 100% staða næringarfræðings (möguleiki á lægra starfshlutfalli eftir samkomulagi) við Sjúkrahúsið á Akureyri, staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. 

Mikil jákvæð þróun er á starfsumhverfi næringarfræðings við sjúkrahúsið, sem býður upp á þverfræðilega samvinnu og tækifæri til þróunar á sérsviði ásamt mikils fjölbreytileika í starfi.

Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson forstöðulæknir Lyflækninga. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Næringarfræðingur veitir skjólstæðingum nýjustu gagnreyndu næringarmeðferðum samkvæmt viðurkenndum aðferðum og ber faglega ábyrgð á starfssviði sínu í samræmi við siðareglur næringarfræðinga
  • Næringarfræðingur á sæti í næringarteymi og vinnur að stefnumótun um næringu fyrir sjúklinga og næringartengd málefni innan sjúkrahússins
  • Næringarfræðingur veitir næringarráðgjöf/næringarmeðferð til einstaklinga eftir tilvísun á dag- og göngudeildum eða legudeildum
  • Næringarfræðingur veitir starfsmönnum klínískra deilda leiðsögn og vinnur með starfsfólki eldhúss
  • Næringarfræðingur tekur þátt í fræðslustafi sjúkrahússins og leiðbeinir nemum

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið viðurkenndu námi í klínískri næringarfræði og hafa löggildingu frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum
  • Starfið krefst einnig skipulagshæfileika, frumkvæðis í starfi og hæfni til að vinna sjálfstætt. 
  • Reynsla af næringarráðgjöf við fjölbreyttan skjólstæðingahóp er æskileg,

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Guðjón Kristjánsson - [email protected] - 463-0100
Erla Björnsdóttir - [email protected] - 463-0100

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum