Hoppa yfir valmynd
SérfræðistörfHöfuðborgarsvæðiðRannsóknamiðstöð Íslands

Vilt þú styðja fyrirtæki og frumkvöðla til góðra verka?

Vilt þú styðja fyrirtæki og frumkvöðla til góðra verka?

Rannís óskar eftir sérfræðingi, sem brennur fyrir nýsköpun og þróun, í fullt starf í nýsköpunarteymi. Starfið felur í sér umsýslu Tækniþróunarsjóðs, skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna og annarra minni sjóða. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér vinnu í nýsköpunarteymi rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís þar sem stærstu verkefnin eru rekstur Tækniþróunarsjóðs og skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna. Einnig kæmi starfsmaður að umsýslu annarra minni sjóða sem heyra undir nýsköpunarteymi. Verkefni starfsmanns felast m.a. í kynningum, samskiptum og upplýsingagjöf við umsækjendur, umsjón fagráða, samningagerð og greiðslum til styrkþega, auk yfirferðar umsókna í skattfrádrátt. 

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf á sviði verkfræði eða raunvísinda er kostur 
  • Þekking á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi 
  • Frumkvæði, góð samskiptafærni og vilji til að veita góða þjónustu
  • Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu
  • Færni í greiningu og hagnýtingu stafrænna gagna er kostur
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði tal- og ritmáli
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna sjálfstæð, öguð og vönduð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2023

Nánari upplýsingar á heimasíðu Rannís, www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini. 

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Rannís er líflegur vinnustaður með um 65 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2023

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Óli Sigurðsson, Sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs - [email protected] - 515 5802

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum