Sérfræðingur í heimilislækningum
Sérfræðingur í heimilislækningum
HSN auglýsir eftir sérfræðingi í heimilislækningum í 80 til 100% stöðu við Heilsugæsluna á Akureyri.
Heimilislæknar sem starfa hjá HSN eru með aðalstarfstöð á heilsugæslustöð og sinna móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt því að sinna vaktþjónustu í héraði skv. vaktaskema hverju sinni.
Störfin fela í sér þverfaglega samvinnu innan sem og út fyrir stöðina.
Næsti yfirmaður er yfirlæknir á starfstöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar og heilsuvernd
- Vaktþjónusta
- Kennsla starfsfólks og nema
- Þróun og teymisvinna
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi eru skilyrði.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni, óskað er meðmæla
- Faglegur metnaður í starfi og árangursmiðuð viðhorf
- Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
- Ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Jón Torfi Halldórsson, Yfirlæknir - [email protected] - 432 4600