Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðHeilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðilæknir / almennur læknir - Geðheilsuteymi fangelsa HH

Sérfræðilæknir / almennur læknir - Geðheilsuteymi fangelsa HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar ótímabundið 80-100% starf sérfræðilæknis við Geðheilsuteymi fangelsa. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánari samkomulagi. 

Við erum að leita að sérfræðilækni sem er tilbúinn að takast á við ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi og líflegum vettvangi. Ekki skemmir fyrir ef viðkomandi hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í geðþjónustu heilsugæslunnar. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu, batahugmyndafræði, skaðaminnkun og vinnu þvert á stofnanir heilbrigðis- og réttavörslukerfis. Teymið sinnir þjónustu á landsvísu og starfar í fangelsum á Litla Hrauni, Hólmsheiði, Sogni og Kvíabryggju. Teymið fylgir einnig eftir einstaklingum á reynslulausn

Til greina kemur að ráða almennan lækni, sem ekki hefur lokið sérnámi, en uppfyllir hæfnikröfur að öðru leyti fáist ekki sérfræðingur í starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og teymisfundum GHF
  • Þátttaka í greiningu geðheilsuvanda og gerð meðferðaráætlana í samstarfi við aðra heilbrigðisstarfsmenn teymisins
  • Samskipti og samvinna við heilsugæslulækna og sérfræðilækna er lýtur að rannsóknum, greiningu og lyfjameðferð fanga í þjónustu GHF
  • Viðtöl við fanga í þjónustu GHF sem þurfa læknisviðtöl vegna geð- og fíknieðferðar
  • Ávísun lyfja og framfylgd lyfjafyrirmæla (skammtastærðir, lyfjabreytingar, fráhvarfs- og viðhaldsmeðferð vegna fíknivanda)
  • Eftirlit með árangri, aukaverkunum, milliverkunum lyfja og öðrum þáttum í lyfjameðferð fanga í þjónustu GHF

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum eða heimilislækningum er æskilegt
  • Reynsla af vinnu á geðdeild eða fíknimeðferð æskileg
  • Reynsla eða áhugi á að vinna með skjólstæðinga með fíknivanda, persónuleikaraskanir eða annan flókinn samsettan vanda
  • Þekking og reynsla á sviði geðlækninga, heimilislækninga, eða lyflækninga
  • Reynsla af vinnu í heilsugæslu
  • Reynsla og góð færni í að vinna í þverfaglegu teymi
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og gott vald á rituðu íslensku máli
  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.  Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2023

Nánari upplýsingar veitir

Helena Bragadóttir - [email protected] - 513-5600
Guðlaug U Þorsteinsdóttir - [email protected] - 513-5000

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum