Sérfræðingur í flóttamannateymi
Sérfræðingur í flóttamannateymi
Vinnumálastofnun á höfuðborgarsvæðinu auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í flóttamannateymi.
Leitað er að áhugasömum, jákvæðum og drífandi starfsmanni sem á auðvelt með samskipti og hefur áhuga á þjónusta fólk af erlendum uppruna.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.
Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar; Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki
Einnig þarf viðkomandi að vera tilbúin/n að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðtöl og fræðsla til flóttafólks um samræmda móttöku og fyrstu skrefin á Íslandi.
Þarfagreining og pörun sveitarfélaga og flóttafólks í samræmdra móttöku.
Veita sveitarfélögum faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf vegna móttöku flóttafólks
Veita faglega ráðgjöf við gerð stuðningsáætlana
Halda utan um og standa fyrir samráði milli þeirra aðila sem koma að móttöku flóttafólks.
Önnur verkefni sem við koma málefnum flóttafólks.
Hæfniskröfur
Reynsla af starfi með flóttafólki og innflytjendum.
Þekking á málefnum flóttafólks og þeirri þjónustu sem þeim er veitt á Íslandi.
Háskólamenntun á sviði félagsvísinda s.s. félagsráðgjöf. Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
Góð íslensku- og enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
Þekking á samræmdri móttöku flóttafólks og félagsþjónustu sveitarfélagana æskileg.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Kröfur eru gerðar um hreint sakavottorð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2023
Nánari upplýsingar veitir
Gísli Davíð Karlsson, Sviðsstjóri - [email protected] - 5154800