Hoppa yfir valmynd
LöggæslustörfSuðurnesLögreglustjórinn á Suðurnesjum

Rannsóknarlögreglumenn - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Rannsóknarlögreglumenn - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar stöður rannsóknarlögreglumanna. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. ágúst 2023 með skipun í huga að sex mánaða reynslutíma loknum.  

Hjá embættinu starfa um 200 manns. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi. Í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum er Keflavíkurflugvöllur sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu almannaflugs á Íslandi og tengir landið við Evrópu og Norður-Ameríku. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Kveðið er á um réttindi og skyldur lögreglumanna  í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð rannsóknarlögreglumanns má finna í 9. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar. 

Meðal verkefna rannsóknarlögreglumanns eru rannsóknir viðameiri og flóknari mála sem vegna eðlis krefjast aukinnar sérhæfingar og sérþekkingar. Leitað er eftir lögreglumönnum m.a. í rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. 

Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er nauðsynleg. Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur. 

Færni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki, nákvæm og traust vinnubrögð og hæfni til að starfa í hóp eru mikilvægir eiginleikar. Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Starfið er dagvinna með bakvöktum.

Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi. 

Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/04/Persónuverndaryfirlýsing-til-umsækjenda.pdf

Auglýsing þessi gildir í 6 mánuði, sbr. ákvæði 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir - [email protected] - 4442200
Bjarney Sólveig Annelsdóttir - [email protected] - 4442200

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum