Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaNorðurlandSjúkrahúsið á Akureyri

Starf í umönnun á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Starf í umönnun á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða jákvæða og þjónustulundaða einstaklinga til starfa við umönnun. Um er að ræða vaktavinnu og eru stöðurnar lausar nú þegar eða eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér umönnun sjúklinga, aðstoð við athafnir daglegs lífs og önnur tilfallandi störf. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af umönnun æskileg
  • Jákvætt viðmót og þjónustulundaður
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Eiga auðvelta með að vinna í teymi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Eining - Iðja hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Erla Björnsdóttir - [email protected] - 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir - [email protected] - 463-0100

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum