Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku
Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku
Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum. Staðan er laus 1. september nk. eða eftir samkomulagi.
Áhugavert og fjölbreytt starf með góðu samstarfsfólki og gott tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að þróa með sér faglega þekkingu í bráðahjúkrun. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Á bráðamóttöku fer fram fjölbreytt starfsemi en meginverkefni deildarinnar er móttaka bráðveikra og slasaðra en annar stór hluti starfseminnar felst í að sinna þeim sjúklingum sem koma í endurkomu/eftirlit vegna áverka sinna eða veikinda.
Hefur þú áhuga á bráðahjúkrun þá er þetta tækifæri fyrir þig
Frábært tækifæri á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og krefjandi.
Næsti yfirmaður er Kristín Ósk Ragnarsdóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða hjúkrun á bráðamóttöku SAK þar sem öll bráðatilvik koma inn
- Sjúklingar tilheyra öllum aldurshópum og koma hvenær sem er sólarhringsins, sem gerir bráðamóttökuna að spennandi vinnustað með mikið af lærdómstækifærum
- Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki
- Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum og unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
- Fjölbreytt og gefandi verkefni í góðum starfsanda þar sem boðið er upp á góða handleiðslu.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa lokið hjúkrunarfræðinámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Faglegur metnaður í starfi
- Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Starfsreynsla af slysa- og bráðatmóttöku er kostur
- Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Ósk Ragnarsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100