Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaVesturlandHeilbrigðisstofnun Vesturlands

Yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslu HVE Ólafsvík

Yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslu HVE Ólafsvík

Laus er til umsóknar staða yfirhjúkrunarfræðings á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Ólafsvík. 

Starfshlutfall er 100% og er staðan laus frá 1.6.2023. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar, 

Ólafsvík er hluti af Snæfellsbæ. Snæfellsbær er sveitarfélag á utanverðu Snæfellsnesi sem varð til 1994 með sameiningu Ólafsvíkurkaupstaðar, Neshrepps utan Ennis, Breiðuvíkurhrepps og Staðarsveitar. Íbúar eru um 1660, flestir búa í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Rif og Hellissandi, en aðrir íbúar eru dreifðir um sveitir þess.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirhjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á hjúkrunarþjónustu heilsugæslustöðvar Ólafsvíkur og formlegu samstarfi við heilsugæslu HVE í Grundarfirði. Starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisis nr. 70/1996. 

Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega og fjárhagslega ábyrgð. Skipuleggur hjúkrunarþjónustu á stöðinni og ber ábyrgð á að gæði hjúkrunar séu tryggð. Vinnur í nánu samstarfi við aðra starfsmenn á heilsugæslustöðinni að þeim margvíslegu verkefnum sem unnin eru á heilsugæslu.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
  • Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er ákjósanleg.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum og starfsmannahaldi. 
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði. 
  • Góð tölvukunnátta. 
  • Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Sækja skal um starf á www.starfatorg.is 

Umsókn skal fylgja ferilsskrá og starfsleyfi ásamt afritum af námskeiðum. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þura Björk Hreinsdóttir - [email protected] - 432-1000

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum