Rannsóknamaður við Námsbraut í talmeinafræði - Heilbrigðisvísindasvið
Rannsóknamaður við Námsbraut í talmeinafræði - Heilbrigðisvísindasvið
Auglýst er 30% hlutastarf til tveggja ára. Einnig kemur lægra starfshlutfall yfir lengra tímabil til greina eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Staðan er fjármögnuð af Rannsóknasjóði (www.rannis.is) með verkefnastyrknum: Einstaklingsmunur í kunnáttu í öðru og þriðja máli á Íslandi: framboð og notkun á tækifærum til málanáms og er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Elín Þöll Þórðardóttir aðjúnkt við Læknadeild HÍ og prófessor við McGill háskóla í Kanada. Rannsóknin beinist einkum að málkunnáttu og málnotkun eldri barna og unglinga sem læra íslensku sem annað mál.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ætlast er til að viðkomandi taki þátt í undirbúningi á prófgögnum, gagnaöflun, úrvinnslu og greiningu gagna og fleiri tilfallandi verkefnum. Þátttaka í greinaskrifum fyrir vísindatímarit og kynningu niðurstaðna á innlendum og erlendum ráðstefnum er einnig hugsanleg. Vinnan fer fram í þverfaglegu og alþjóðlegu rannsóknarumhverfi.
Hæfniskröfur
- Bachelor eða meistarapróf á sviði talmeinafræði, sálfræði, málvísindum, íslensku, kennslufræði eða öðrum tengdum greinum.
- Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Góð tölvukunnátta er æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsækjendur skulu senda ferilskrá sína, prófskírteini, auk bréfs sem tilgreinir rannsóknarreynslu þeirra, lista yfir birtingar, markmið í starfi, auk nafna, síma og netfanga tveggja akademískra meðmælenda.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst, eftir nánara samkomulagi.
Staðan er styrkt til eins árs í senn af Rannsóknarsjóði Vísinda- og tækniráðs.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Starfshlutfall er 30%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Elín Þöll Þórðardóttir - [email protected]