Háskólamenntaður starfsmaður / afleysingstarf á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Háskólamenntaður starfsmaður/ afleysingstarf á erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala
Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða.
Deildin heyrir undir rannsóknarsvið og fara þar fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu.
Á deildinni starfa yfir 30 manns í öflugu þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Þjónusturannsóknir í sameindaerfðafræði og önnur verkefni tengd starfsemi deildarinnar
» Skil á svörum samkvæmt stöðluðum aðferðalýsingum og viðeigandi verklagsreglum
» Að stuðla að faglegu starfi, gæðum og framförum í rannsóknum innan deildarinnar
Hæfnikröfur
» Háskólapróf í náttúrufræði, lífeindafræði, lífefnafræði, líffræði eða sambærilegum greinum
» Meistarapróf er æskilegt en ekki nauðsynlegt
» Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði erfðarannsókna er æskileg
» Góð almenn tölvukunnátta
» Góð skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
» Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma
» Hæfni til að starfa í teymi
» Góð enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem tæplega 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019
Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur Briem - [email protected] - 847 5504
Landspítali
Erfða- og sameindalæknisfræðideild
Hringbraut
101 Reykjavík
Sækja um starf
Starfssvið: Sérfræðingar á heilbrigðissviði