Hjúkrunarfræðingur - taugalækningadeild
Hjúkrunarfræðingur - Komdu í okkar lið
Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Við bjóðum jafnt velkominn reynslubolta sem og nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu. Í boði er einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma.
Starfshlutfall, vinnufyrirkomulag og upphaf starfs er samkomulag, fastar næturvaktir eru í boði. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Taugalækningadeild þjónar sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 manns í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum. Velkomið að kíkja í heimsókn og kynnast starfseminni, áhugasamir hafi samband við Guðrúnu deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérhæfð hjúkrun
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
» Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala
» Fylgjast með nýjungum í faginu
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Hæfni og geta til að vinna í teymi
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Jónsdóttir - [email protected] - 825 3702
Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir - [email protected] - 543 6101
Landspítali
Taugalækningadeild
Fossvogi
108 Reykjavík
Smelltu hér til að sækja um starfið