Fréttir og tilkynningar
Boðið er upp á áskrift að fréttum Gæða- og eftirlitsstofnunar undir flokknum Annað á áskriftarsíðu Stjórnarráðsins
- Ný reglugerð um starfsleyfi til einkaaðila sem veita félagsþjónustu 28.12.2020Einkaaðili sem veitir lögbundna þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 fyrir hönd sveitarfélags á grundvelli samningssambands skal hafa starfsleyfi.
- Úttekt á þjónustu við íbúa í Skálatúni08.12.2020Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar lauk nýlega úttekt á þjónustu við íbúa í Skálatúni í Mosfellsbæ.
- Ábendingar til GEF um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA)19.10.2020Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar hafa borist þó nokkrar ábendingar er varða þjónustuformið notendastýrð persónulega aðstoð (NPA) samkvæmt lögum nr. 38/2018.
- FélagsmálaráðuneytiðNý reglugerð um starfsleyfi til einkaaðila sem veita þjónustu við fatlað fólk07.09.2020Þann 2. september sl. tók gildi ný reglugerð um starfsleyfi til einkaaðila sem veita þjónustu við fatlað fólk nr. 856/2020 sem leysir af hólmi eldri reglugerð.
- Frestun á námskeiðum um persónulega talsmenn03.09.2020Námskeiðum um persónulega talsmenn fatlaðs fólks skv. lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sem fyrirhuguð voru 26. september og 10. október næstkomandi, hefur verið frestað.
- FélagsmálaráðuneytiðNý gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk20.08.2020Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar birtir nú gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk. Gæðaviðmiðin voru unnin í náinni samvinnu við helstu hagsmunaaðila í málaflokknum.
- Ársskýrsla 2019 er komin út24.07.2020Ársskýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) fyrir árið 2019 er komin út. Þetta er önnur ársskýrsla stofnunarinnar en hún hóf starfsemi sína í maí 2018.
- Lögbundið eftirlit með meðferðarheimilum Barnaverndarstofu.23.07.2020Með breytingu á barnaverndarlögum árið 2011 var þáverandi velferðarráðuneyti gert ábyrgt fyrir eftirliti með meðferðarheimilum Barnaverndarstofu.
- FélagsmálaráðuneytiðBreytingar hjá réttindagæslu fatlaðs fólks15.07.2020Halldór Gunnarsson lét af störfum sem yfirmaður réttindagæslumanna 1. júlí sl. Halldór kom til starfa í velferðarráðuneytinu sem réttindagæslumaður í Reykjavík og á Seltjarnarnesi árið 2011.
- Úrskurður nr. 87/2019 um kostnaðarhlutdeild fatlaðs einstaklings í fæðiskostnaði starfsmanns sveitarfélags10.07.2020Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar vekur athygli á nýlegum úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 87/2019 þar sem ákvörðun Akraneskaupstaðar var felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.
- Námskeið um persónulega talsmenn 25.06.2020Þeim sem hafa áhuga á að gerast persónulegir talsmenn fyrir fatlaða einstaklinga er bent á að námskeið verða í Reykjavík laugardaginn 26. september 2020 og laugardaginn 10. október á Akureyri.
- Starfsleyfisskyldur rekstur einkaaðila12.06.2020Vakin er athygli á að einkaaðilar sem veita eða hyggjast veita þjónustu samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eða samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, þurfa að afla starfsleyfis félagsmálaráðuneytisins.
- Heimsóknir og samráðsfundir hefjast aftur09.05.2020Starfsemi Úttektarteymis GEF og Sérfræðiteymis um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar hafa nú færst aftur til fyrra horfs við tilslökun á samkomubanni þann 4. maí síðastliðinn.
- Framlenging á frestun heimsókna GEF vegna úttekta og eftirlits á starfsstaði 07.04.2020Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 og framlengingar samkomubanns til 4. maí frestar Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) heimsóknum á starfsstaði vegna úttekta og eftirlits.
- Starfsemi sérfræðiteymisins á tímum heimsfaraldurs30.03.2020Frá Sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk.
- Vinnsla starfsleyfisumsókna18.03.2020Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) upplýsir um að í ljósi aðstæðna sem skapast hafa verður vinnsla starfsleyfisumsókna nú sett á bið til 13. apríl nk.
- Starfsemi GEF á tímum heimsfaraldurs17.03.2020Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) fylgir fyrirmælum sóttvarnarlæknis og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, sem lýst hafa yfir hæsta almannavarnarstigi, neyðarstigi, vegna faraldurs veirunnar sem veldur sjúkdómnum COVID-19.
- Starfsmannabreytingar hjá GEF13.02.2020Þann 31. janúar sl. lét Sigríður Jónsdóttir af störfum en hún gegndi embætti framkvæmdastjóra Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) frá frá því að stofnunin hóf starfsemi í maí 2018.
- Stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar26.11.2019Stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar er nú birt í fyrsta sinn. Í stefnunni koma fram gildi stofnunarinnar, hlutverk, sýn og verkefni.
- Úttekt á búsetuþjónustu Vinakots14.11.2019Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar lauk nýlega úttekt á búsetuþjónustu Vinakots. Vinakot er í dag með búsetuúrræði á tveimur stöðum en þegar reksturinn var umfangsmestur voru rekin búsetuúrræði á níu stöðum. Í janúar 2018 var starfsemi fyrirtækisins skipt upp með það að markmiði að bæta gæði þjónustunnar.
- Eftirfylgni eftirlits og úttekta29.10.2019Í septembermánuði s.l. var lokið við eftirfylgni úttektar á þjónustu við fatlaðan einstakling í búsetuúrræði.
- Viltu gerast áskrifandi að fréttum GEF?01.10.2019Hægt er að skrá sig í áskrift að fréttum og fleiru sem birt er á vef GEF. Tilkynningar eru sendar á uppgefið netfang þegar nýjar fréttir birtast.
- Spurt og svarað um starfsleyfi12.09.2019Vakin er athygli á að nú eru komnar viðbótarupplýsingar um starfsleyfi sem byggjast á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
- Unnið að gerð gæðaviðmiða fyrir þjónustu við fatlað fólk14.08.2019Í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi þjónustuþarfir, 4. gr. um yfirstjórn og eftirlit ráðherra, er kveðið á um að ráðherra skuli hafa eftirlit með framkvæmd laganna.
- Ársskýrsla 2018 er komin út11.07.2019Ársskýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar fyrir árið 2018 er komin út.
- Niðurstöður úttektar á þjónustu við fatlað fólk í Hveragerðisbæ15.05.2019Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) hefur unnið úttekt á þjónustu við fatlað fólk í Hveragerðisbæ og liggja niðurstöður nú fyrir.
- FélagsmálaráðuneytiðRekstraraðilar sem reka félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk sæki um starfsleyfi fyrir 27. maí02.05.2019Félög, félagasamtök, sjálfseignarstofnanir og aðrir þjónustu- og rekstraraðilar sem veita eða hyggjast veita þjónustu samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eða samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, þurfa að afla starfsleyfis félagsmálaráðuneytisins.
- FélagsmálaráðuneytiðNý framkvæmdaáætlun í barnavernd – stórsókn í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra30.04.2019Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mælti á Alþingi í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar til fjögurra ára. Um er að ræða fjórðu framkvæmdaáætlun ríkisins í barnavernd en með henni er blásið til stórsóknar í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
- FélagsmálaráðuneytiðSkýrsla um aðgerðir til að endurvekja traust og trúnað í barnavernd22.03.2019Skýrsla um aðgerðir til þess að endurvekja traust og trúnað í málaflokki barnaverndar á Íslandi liggur nú fyrir. Samskipti og samstarf Barnaverndarstofu og starfsmanna barnaverndarnefnda voru til skoðunar í velferðarráðuneytinu, sem nú hefur verið skipt upp í félagsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, samkvæmt beiðni barnaverndarnefnda á höfuðborgarsvæðinu í lok árs 2017. Í skýrslunni er að finna tillögur að verklagsreglum um samskipti.
- FélagsmálaráðuneytiðTilkynning vegna umsókna um starfsleyfi og útgáfu þeirra28.12.2018Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar mun taka á móti umsóknum um starfsleyfi frá þeim sem hyggjast veita þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, frá 4. janúar næstkomandi.
- FélagsmálaráðuneytiðReglugerðir um starfsleyfi þeirra sem sinna félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk27.11.2018Tekið hafa gildi tvær nýjar reglugerðir félags- og jafnréttismálaráðherra þar sem kveðið er á um að félagasamtök, sjálfseignarstofnanir og aðrir þjónustu- og rekstraraðilar sem sinna félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum þar að lútandi, skuli starfa á grundvelli starfsleyfis frá velferðarráðuneytinu.
- FélagsmálaráðuneytiðViðbrögð velferðarráðuneytisins við niðurstöðum óháðrar úttektar08.06.2018Velferðarráðuneytið hefur móttekið skýrslu með niðurstöðum óháðrar úttektar á málsmeðferð og efnislegri athugun ráðuneytisins í kjölfar kvartana þriggja barnaverndarnefnda vegna Barnaverndarstofu og forstjóra hennar.
- FélagsmálaráðuneytiðGæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar tekin til starfa07.05.2018Ný ráðuneytisstofnun; Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF), tók formlega til starfa í dag. Stofnunin mun í byrjun sinna stjórnsýsluverkefnum og eftirliti á sviði félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga, auk afmarkaðs eftirlits á sviði barnaverndar.
Gæða- og eftirlitsstofnun
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.