Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2003 Dómsmálaráðuneytið

Áætlun um hættumat og áhættugreiningu vegna eldgosa og hlaupa til norðurs, vesturs og suðurs frá Eyjafjallajökli og vesturhluta Mýrdalsjökuls.

1. júlí 2003


Undanfarið hefur borið talsvert á skjálftavirkni í vestanverðum Mýrdalsjökli og talið er að komið hafi endurtekin kvikuinnskot undir Eyjafjallajökul á síðustu árum. Með þessu hefur verið fylgst af hálfu almannavarnayfirvalda og viðbragðsáætlanir hafa verið gerðar, en þær fyrst og fremst miðast við hugsanleg jökulhlaup til suðurs frá Mýrdalsjökli. Nýlega hafa komið fram við jarðlagakönnun upplýsingar um að stór hlaup hafi komið í Markarfljót vegna eldgosa í vestanverðum Mýrdalsjökli, sem orðið hafa á 1000 – 2000 ára fresti frá lokum síðustu ísaldar.

Starfshópur sérfræðinga hefur á vegum almannavarnayfirvalda fjallað um þetta mál og telur hann hættumat og áhættugreiningu vera nauðsynlegan grundvöll þess að hægt sé að gera raunhæft skipulag almannavarna á svæðinu til verndar lífi og eignum fólks. Jafnframt þurfi að koma á vöktun svæðisins í samræmi við niðurstöður hættumatsins.

Niðurstöður starfshópsins eru birtar hér:

Áætlun um hættumat og áhættugreiningu vegna eldgosa og hlaupa til norðurs, vesturs og suðurs frá Eyjafjallajökli og vesturhluta Mýrdalsjökuls. PDF (2,77 mb)

Áætlun um hættumat og áhættugreiningu vegna eldgosa og hlaupa(377k) (minni myndgæði skýringamynda)




Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum