Hoppa yfir valmynd
5. desember 2008 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Óskað umsagna um net- og upplýsingaöryggi

Samgönguráðuneytið óskar eftir umsögnum um hvernig best verði staðið að því að tryggja fullnægjandi net- og upplýsingaöryggi á íslenskum fjarskipta- og tölvunetum. Þess er óskað að umsagnir berist ráðuneytinu eigi síðar en 15. janúar næstkomandi.

Fjarskiptaáætlun áranna 2005 til 2010 gerir ráð fyrir að stofnaður verið CERT-hópur (Computer Emergency Response Team) auk þess sem þátttaka Íslendinga verði aukin í erlendu samráði um öryggismál og varnir efldar til að net- og upplýsingakerfi virki óhindrað.

Þar sem öryggi í fjarskipta- og upplýsinganetum snertir flest fyrirtæki og stofnanir á Íslandi auk alls almennings telur samgönguráðuneytið mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra um með hvaða hætti öryggið verði best tryggt. Í skjali þessu eru sett fram atriði til umræðu í tengslum við kynningarskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar um CSIRT/CERT teymi á Íslandi. Samgönguráðuneytið óskar eftir athugasemdum og ábendingum til þess að fá fram sem flest sjónarmið um hvernig best verði staðið að því að tryggja fullnægjandi net- og upplýsingaöryggi á íslenskum tölvunetum.

Miðvikudaginn 17. desember 2008 klukkan 13 verður haldinn kynningarfundur um CSIRT/CERT málefni í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands. Meðal fyrirlesara er verður fulltrúi frá European Network and Information Security Agency (ENISA).

Senda skal umsagnir í tölvupósti á netfangið [email protected]. Samgönguráðuneytið áskilur sér rétt til að birta efni innsendra umsagna en mun ekki birta nöfn sendenda.

 



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum