Skýrsla nefndar um fjárhagsvanda hafna
Á hafnasambandsþingi haustið 2008 var m.a. fjallað um fjárhag hafna. Í einu af framsöguerindum sem flutt voru á þinginu var bent á lausnir sem hægt væri að nota til að bæta fjárhag hafna og aðstoða þær við að laga sig að breytingum í rekstrarumhverfi sínu.
Í framhaldi af því ákvað samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að skipa nefnd til að fjalla um málið og koma með tillögur að lausnum. Skýrsla nefndarinnar er nú komin út.
Skýrsla nefndar um tillögur um hvernig bregðast megi við fjárhagsvanda hafna