Hoppa yfir valmynd
9. mars 2011 Matvælaráðuneytið

Orkuöryggi á Vestfjörðum – áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun- skýrsla ráðgjafahóps sem iðnaðarráðherra skipaði í nóvember 2009.

Orkuöryggi á Vestfjörðum er lakara en í öðrum landshlutum og fylgir því tilheyrandi samfélagskostnaður. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra skipaði ráðgjafahóp í nóvember 2009 og var hlutverk hans m.a. að kortleggja núverandi stöðu, meta áhrif raforkuöryggis á möguleika til atvinnuuppbyggingar og hagvaxtar og gera tillögur um aðgerðir til að bæta raforkuöryggið.

Ráðgjafahópurinn hefur nú skilað skýrslu og kynnti Katrín Júlíusdóttir hana í vikunni fyrir Vestfirðingum á tveimur fundum á Patreksfirði og Ísafirði. Í skýrslu hópsins er gerð grein fyrir mismunandi sviðsmyndum um úrbætur og framtíðaruppbyggingu flutningskerfisins og hvernig megi styrkja það, t.d. með nýjum smærri og stærri virkjunum á svæðinu. Þá leggur ráðgjafahópurinn til að í samráði við Landsnet verði gerð áætlun um hringtengingu raforkuflutnings fyrir Vestfirði og að auki heilstæð rannsóknaráætlun fyrir raforkuframleiðslu á Vestfjörðum.

Í ráðgjafahópnum voru Guðni A Jóhannesson, orkumálastjóri, Matthildur Helga- og Jónudóttir, framkvæmdastjóri Snerpu á Ísafirði og Þorgeir Pálsson, formaður Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða (til nóv. 2010).

Skýrsla ráðgjafahópsins

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum