Hoppa yfir valmynd
17. maí 2011 Dómsmálaráðuneytið

Samantekt um starfsaðferðir lögreglu, samstarf við erlendar löggæslustofnanir og meðferð trúnaðarupplýsinga

Í upphafi þessa árs voru í fjölmiðlum fréttir um að hér á landi hafi starfað á vegum bresku lögreglunnar flugumaður að nafni Mark Kennedy, sem gekk undir nafninu Mark Stone. Kennedy tók þátt í mótmælum grasrótarsamtaka í 22 Evrópulöndum, þar með talið við Kárahnjúka árið 2005, í þeim tilgangi að afla upplýsinga fyrir lögregluna.

Af þessu tilefni spurðist ráðuneytið fyrir um það hjá embætti ríkislögreglustjóra hvaða upplýsingar embætti ríkislögreglustjóra hefði um málið.

Embætti ríkislögreglustjóra afhenti ráðuneytinu samantekt þar sem m.a. er fjallað um mál Marks Kennedy. Vikið er sérstaklega að starfsaðferðum og viðbrögðum lögreglu vegna aðgerða samtakanna Saving Iceland. Í samantektinni er einnig fjallað um starfsaðferðir lögreglu, alþjóðlega lögreglusamvinnu, meðferð trúnaðarupplýsinga og samskipti við upplýsingaaðila þegar kemur að stærri lögregluaðgerðum.

Skýrslan er nú birt hér í fullri lengd, auk yfirlýsingar innanríkisráðherra um málið sem fer hér á eftir.

Yfirlýsing frá innanríkisráðherra:

Fyrir nokkru óskaði ég eftir því að fá upplýsingar um það hvort flugumaður á vegum bresku lögreglunnar, sem var hér á landi til að njósna um andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar árið 2005, hafi verið hér að tilhlutan eða með vitneskju íslensku lögreglunnar.

Í skýrslu ríkislögreglustjóra til innanríkisráðherra af þessu tilefni er fjallað um þessar tilteknu mótmælaaðgerðir og aðkomu lögreglu að þeim en einnig um starfsaðferðir lögreglu, samstarf við erlendar löggæslustofnanir og meðferð trúnaðarupplýsinga.

Í skýrslunni kemur fram að samstarf hefur verið á milli íslensku lögreglunnar og erlendra lögregluliða um miðlun upplýsinga varðandi aðgerðir mótmælenda við Kárahnjúka. Þannig hafi verið fengnir hingað til lands lögreglumenn til að upplýsa íslensku lögregluna um þekktar baráttuaðferðir og upplýsingum miðlað landa í millum um einstaklinga sem handteknir voru vegna mótmælanna. 

Athugun embættis ríkislögreglustjóra hefur leitt í ljós að engin gögn eða upplýsingar fyrirfinnist sem bendi til að vitneskja hafi verið um að Mark Kennedy hafi verið hér á landi sem flugumaður á vegum bresku lögreglunnar, þótt embættið leggi jafnframt áherslu á að samstarf við erlend lögreglulið byggist iðulega á miðlun upplýsinga sem viðtakandi er ekki upplýstur um hvaðan komi. Þess vegna sé vafasamt að fullyrða hvaðan upplýsingar séu runnar og kunni það að eiga við um mótmælin við Kárahnjúka.

Orðrétt segir: „Við yfirferð gagna hjá embætti ríkislögrelgustjóra hafa ekki komið fram upplýsingar sem gera kleift að skera úr um hvort þessi flugumaður bresku lögreglunnar hafi verið hér á landi í samvinnu eða með vitund lögreglunnar árið 2005.“

Fram hafa komið í fréttum alvarlegar ásakanir um vinnubrögð evrópskra lögregluyfirvalda sem eru forkastanlegar, ef sannar eru, nefnilega að kallaðir séu til flugumenn sem láti ekki sitja við það eitt að njósna um fólk heldur æsi til uppþota og jafnvel ofbeldis til að sverta góðan málstað. Þá hefur komið fram í fjölmiðlum að breski lögreglumaðurinn Mark Kennedy hafi stofnað til kynferðislegs sambands við konur úr röðum mótmælenda, en slíkt er skýlaust brot á lögum og lögreglusamþykktum alls staðar í siðuðum þjóðfélögum.

Upplýst hefur verið að konur sem orðið hafa fyrir barðinu á Mark Kernnedy, í Þýskalandi og hugsanlega annars staðar, hyggist leggja fram kæru á hendur honum. Fari svo þykir mér sýnt að öllum þeim upplýsingum, sem fram kunna að koma um óeðlileg afskipti þessa einstaklings af mótmælendum hér á landi, verði komið á framfæri við hlutaðeigandi yfirvöld.

Við hljótum að gera þá afdráttarlausu kröfu til lögreglu sem við eigum í samstarfi við að hún hafi að leiðarljósi siðferðisgildi sem leyfa ekki svona framferði, auk þess sem mér finnst íhlutun yfirvalda með þessum hætti í mótmæli af pólitískum toga beinlínis vera tilræði við lýðræðið.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum