Hoppa yfir valmynd
20. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðherra heiðrar skáksveit Rimaskóla

Svandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, bauð skáksveit Rimaskóla, ásamt foreldrum og systkinum til móttöku í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.  Tilefnið var glæsilegur sigur sveitarinnar á Norðurlandamóti barnaskólasveita 2011 sem haldið var í bænum Hadsten í Danmörku.


IMG_5033
IMG_5033

Svandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, bauð skáksveit Rimaskóla, ásamt foreldrum og systkinum til móttöku í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.  Tilefnið var glæsilegur sigur sveitarinnar á Norðurlandamót barnaskólasveita 2011 sem haldið var í bænum Hadsten í Danmörku.  Um titilvörn var að ræða því skólinn vann mótið einnig í fyrra en sveitin í ár er þó breytt. Í skáksveit Norðurlandameistaranna eru Oliver Aron Jóhannesson, Kristófer Jóel Jóhannesson, Jóhann Arnar Finnsson, Svandís Rós Ríkharðsdóttir og Nansý Davíðsdóttir, sem þrátt fyrir ungan aldur hlaut flesta vinninga sveitarinnar eða 4,5 af 5 mögulegum. Liðstjóri sveitarinnar er Hjörvar Steinn Grétarsson.

IMG_5039Ráðherra ávarpaði unga fólkið í upphafi móttökunnar og óskaði þeim og Rimaskóla hjartanlega til hamingju með frábæran árangur. Hún sagðist sem mennta- og menningarmálaráðherra vera stolt af þessum góða árangri fyrir Íslands hönd og minnti á hve góðar fyrirmyndir þau væru öðru ungu fólki. Helgi Árnason skólastjóri þakkaði í stuttri ræðu ráðherra fyrir boðið og þau hvatningarorð sem hún talaði til unga afreksfólksins.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum