Hoppa yfir valmynd
7. júní 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Drög að nýjum greinanámskrám fyrir grunnskóla til umsagnar

Á vef ráðuneytisins eru birt drög að námssviða- og námsgreinahluta  nýrrar aðalnámskrár grunnskóla. Ráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð við drögunum áður en þær verða gefnar út.

Námskrárdrög
námskrárdrög

Á vef ráðuneytisins eru birt drög að námssviða- og námsgreinahluta  nýrrar aðalnámskrár grunnskóla.
Skipaðar voru ritnefndir um hvert greinasvið á vegum ráðuneytisins til að endurskoða gildandi aðalnámskrá með hliðsjón af nýrri menntastefnu sem birtist í almennum hluta frá  2011. Í ritnefndum sátu fulltrúar úr háskólasamfélaginu, aðilar frá fagfélögum kennara og aðrir hagsmunaaðilar. Til viðmiðunar var hafður rammi um námsgreinar og námssvið sem birtur er í almennum hluta aðalnámskrár.
Ráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð við drögunum áður en gengið verður frá þeim til útgáfu. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að bregðast við og senda inn athugasemdir um drögin á netfangið [email protected] í síðasta lagi 7. september 2012.

Námskrárnar verða gefnar út í haust og hafa skólar þá tvö ár til að innleiða að fullu aðalnámskrá grunnskóla. Ný tilhögun námsmats verður notuð í fyrsta sinn við brautskráningu nemenda úr 10. bekk vorið 2015.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum