Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2012 Forsætisráðuneytið

Ný skýrsla starfshóps um samþættingu menntunar og atvinnu

Starfshópur um samþættingu mennta- og atvinnumála sem settur var á laggirnar á grundvelli þingsályktunar um sama efni í júní 2011 hefur nú skilað skýrslu með tillögum sínum til forsætisráðherra. Hópurinn var skipaður fulltrúum úr skólasamfélaginu, ráðuneytum og samtökum atvinnurekenda og launamanna. Hópurinn hefur starfað síðan í september 2011 og haldið rúmlega 40 fundi.

Í skipunarbréfi starfshópsins kemur fram að hlutverk hans sé að móta aðgerðaráætlun sem þættir saman áherslur í mennta- og atvinnustefnu stjórnvalda með tilliti til menntunarþarfar atvinnulífsins. Tilgangurinn er m.a. að auka vægi starfsnáms í íslensku menntakerfi og þróa nýjar fjölbreyttar námsleiðir.

Greining:

Meðal þess sem fram kemur í greiningu starfshópsins er að:

  • Margir fara ekki í nám við hæfi
  • Þriðjungur Íslendinga hefur ekki lokið námi á framhaldsskólastigi
  • Brotthvarf er viðvarandi vandamál í íslenskum framhaldsskólum
  • Námstími er óvenju langur á Íslandi

Fjallað er um misvægi menntunar og þarfa atvinnulífsins hér á landi og gerður samanburður við lönd Evrópusambandsins og OECD.

Tillögur:

Tillögur starfshópsins eru sem hér segir:

Skilvirkari menntastefna:

  • Allir nemendur ljúki a.m.k. framhaldsskólaprófi
  • Stytting og betri nýting námstíma í grunn- og framhaldsskóla
  • Aukin áhersla á einstaklingsmiðað nám
  • Aðgerðir gegn brotthvarfi hefjist strax í grunnskóla
  • Virkni nemenda í skólastofunni aukin og nýsköpun efld á öllum skólastigum
  • Endurskoðun á forsendum reiknilíkans framhaldsskóla
  • Samfella milli skólastiga
  • Aukin ráðgjöf til ungs fólks um menntun og atvinnu.
  • Efling þekkingargrundvallar við mótun menntastefnu

Aukið vægi verk- og tæknináms í íslensku menntakerfi:

  • Aðgerðaáætlun um eflingu verk- og tæknináms á framhaldsskóla- og háskólastigi
  • Hvatningarátak í þágu verk- og tæknináms
  • Aukin áhersla á verk- og tæknigreinar í grunnskólum
  • Náms- og starfsráðgjöf efld í grunn- og framhaldsskólum
  • Nýjar námsleiðir þróaðar í verk- og tækninámi

Samstarf atvinnulífs og skóla:

  • Greining á mannafls- og menntunarþörf atvinnulífsins
  • Virkara samstarf skóla og atvinnulífs um nýjar áherslur í menntun
  • Vinnustaðaþáttur námsins verði efldur og tenging við atvinnulíf aukin

Samráð um þróun menntunar:

  • Settur verði á fót víðtækur samráðsvettvangur um framtíðarstefnu menntakerfis

Lagt er til að mennta- og menningarmálaráðuneytinu verði falið að hrinda tillögunum í framkvæmd í samráði við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og velferðarráðuneytið.

Nánari upplýsingar veitir Skúli Helgason, formaður starfshópsins s. 695-6901.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum