Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2014 Matvælaráðuneytið

Hönnunarstefna 2014–2018  /  Hönnun sem drifkraftur til framtíðar

Hönnun lúðrast út
Hönnun lúðrast út
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti í dag Hönnunarstefnu stjórnvalda fyrir árin 2014-2018. Starfshópur hefur unnið að hönnunarstefnunni síðan í ársbyrjun 2011 í breiðu samstarfi stjórnvalda, atvinnulífs og hönnunarsamfélags. Við sama tækifæri undirrituðu iðnaðar- og viðskiptaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra samkomulag um að rekstur hönnunarsjóðs færist undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. 

Markmiðið með mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland er að auka vægi hönnunar í íslensku atvinnulífi með það að sjónarmiði að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og auka verðmætasköpun og lífsgæði enda miðar aðferðafræði hönnunar að því að brúa bilið milli sköpunargáfu og nýsköpunar, tækni og notanda, vísinda- og markaðstengdra greina.

Ásta Magnúsdóttir mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Halla Helgadóttir Hönnunarmiðstöð og Ragnheiður Elín ráðherra hönnunarmálaÍ ársbyrjun 2011 skipaði iðnaðarráðherra þriggja manna starfshóp til að vinna tillögu að hönnunarstefnu. Hópinn skipuðu Sigurður Þorsteinsson, iðnhönnuður og formaður starfshóps, fulltrúi iðnaðarráðherra, Jóhannes Þórðarson, arkitekt fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra og Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður, fulltrúi Hönnunarmiðstöðvar Íslands.  

Hönnunarstefnan byggir á þremur gunnstoðum og fylgja hverri þeirra útfærðar tillögur. Grunnstoðirnar eru:

  • Menntun og þekking: Lögð er sérstök áhersla á að auka veg hönnunar í grunn- og framhaldsskólum og að rannsóknartengt háskólanám í hönnun sé eflt.
  • Starfs- og stuðningsumhverfi hönnuða: Efla skal samstarf, auka skilvirkni, einfalda leiðir og bæta regluverk.
  • Vitundarvakning: Auka skilning á mikilvægi og virði góðrar hönnunar og arkitektúrs. Standa fyrir kynningum og sýningum á íslenskum og erlendum vettvangi.

Þetta er í fyrsta sinn sem unnin er opinber stefnumörkun á sviði hönnunar eins og tíðkast hjá mörgum nágrannalöndum okkar. Finnland hefur til að mynda markað sér heildstæða hönnunarstefnu til að styðja við hagkerfið og efla samkeppnishæfni. Er það mat sérfræðinga að innleiðing hönnunarstefnu í Finnlandi hafi haft veruleg áhrif á efnahagslegan vöxt og samkeppnishæfni landsins eftir efnahagskreppuna á níunda áratugnum. Þá setti danska ríkisstjórnin hönnunarstefnu til fjögurra ára sem eina af fimm leiðum til að stuðla að efnahagsþróun sem kallaðist „Danmörk í menningar- og upplifunarhagkerfi“.

Hönnunarstefna stjórnvalda er sett fram til fimm ára í breiðu samstarfi stjórnvalda, atvinnulífs og hönnunarsamfélags. Til að tryggja framgang stefnunnar verður settur á fót stýrihópur hönnunarstefnu sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti skipar í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneyti. 

Hönnunarstefna 2014-2018

Hönnun er ...

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum