Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2015 Matvælaráðuneytið

Skýrsla starfshóps um tollamál á sviði landbúnaðar

Starfshópur sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði 3. mars 2014 um tollamál á sviði landbúnaðar hefur nú skilað skýrslu til ráðherra. Hópnum var meðal annars falið að gera grein fyrir helstu núgildandi samningum um viðskipti með landbúnaðarvörur, að greina sóknarfæri sem kunna að vera til staðar í núgildandi samningunum, að athuga möguleika á gerð tvíhliða samninga við ný lönd og ríkjasambönd og gera úttekt á þróun tollverndar á helstu landbúnaðarvörum frá 1995.

Árið 1995 gerðist Ísland aðili að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), auk þess hefur Ísland gert 25 fríverslunarsamnina við 35 ríki, ásamt mörgum tvíhliðasamningum um viðskipti með landbúnaðarvörur, svo sem við Evrópusambandið, Kína, Noreg, Sviss, Færeyjar og Grænland. Ísland er því aðili að viðskiptasamningum við tæplega 70 ríki um inn- og útflutning landbúnaðarvara. Í skýrslunni kemur fram að heildarinnflutningur landbúnaðarvara nam tæpum 52 milljörðum árið 2013 en útflutningur var á sama tíma tæplega 8 milljarðar. Innflutningurinn hefur aukist um 10,5 milljarða á fjórum árum en útflutningurinn um einn milljarð.

Mest er tollvernd í alifuglakjöti, unnum kjötvörum og svínakjöti. Á nautakjöti, ostum, reyktu og söltuðu kjöti er hún lægri. Samkvæmt Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) hefur hlutfall tekjuígildis ríkisstuðnings af framleiðsluverðmæti bænda, farið úr 77% á árunum 1986-88 í 41,3% samkvæmt nýjustu mælingum.

Útflytjendur íslenskra landbúnaðarvara hafa markaðsaðgang fyrir helstu afurðir, en þó þarf að bæta markaðsaðgang fyrir ákveðnar afurðir, svo sem mjólkurafurðir, vatn, bjór og sælgæti þar sem vaxandi tækifæri eru til útflutnings. Til að auka gagnkvæman markaðsaðgang verður Ísland að lækka tolla og/eða veita betri markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvöru, einkum frá Evrópu. Samningar við ESB um aukinn gagnkvæman markaðsaðgang hafa staðið yfir frá 2012. Þrýst hefur verið á af Íslands hálfu að ljúka þeim og var fyrirhugaður fundur í haust og aftur í febrúar en þeim var báðum frestað að beiðni Evrópusambandsins. Unnið er að því að ákveða nýjan fundartíma.

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum