Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2015 Dómsmálaráðuneytið

Drög að breytingu á reglugerð um för yfir landamæri til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 1212/2007. Snýst breytingin um samræmingu á reglum um tímabundna upptöku eftirlits á innri landamærum Schengen-svæðisins við sérstakar aðstæður og ítarlegri málsmeðferðarreglur þar að lútandi. 

Breytingarnar miða að því að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðs Evrópusambandsins nr. 1051/2013. Þær snúa m.a. að heimild ráðsins, að fenginni tillögu frá framkvæmdastjórn ESB, til að gefa út tilmæli um að tímabundið verði tekið upp eftirlit á innri landamærum Schengen-ríkis í allt að 6 mánuði. Þeirri heimild er þó einungis hægt að beita sem síðasta úrræði og þá í kjölfar úttekta sem leitt hafa í ljós alvarlega veikleika á landamærastjórn ríkisins, sem það hefur ekki bætt úr þrátt fyrir ábendingar þar um og eru þannig viðvarandi, alvarlegar og ógna almannareglu og öryggi svæðisins í heild. Framangreindar reglur breyta ekki heimild einstakra ríkja til þess að ákveða að taka upp tímabundið eftirlit á landamærum svo sem verið hefur. 

Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um reglugerðardrögin til og með 20.  júlí 2015 og skulu þær berast á netfangið [email protected].


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum