Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verkefni um endurheimt votlendis hafið

Horft til Snæfells

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett af stað verkefni um endurheimt votlendis í samræmi við sóknaráætlun í loftslagsmálum. Landgræðslu ríkisins hefur verið falið að annast framkvæmdina í samræmi við tillögur samráðshóps um endurheimt votlendis.

Haustið 2014 boðaði umhverfis- og auðlindaráðuneytið til samráðs helstu hagsmuna- og fagaðila um mótun aðgerðaáætlunar til að endurheimta votlendi. Markmið starfsins var að kortleggja hvaða svæði koma til greina til endurheimtar án þess að skaða hagsmuni annarrar landnotkunar. Jafnframt var markmiðið að móta aðferðafræði til að forgangsraða slíkum svæðum t.d. með tilliti til ávinnings fyrir lífríki, losun gróðurhúsalofttegunda, hagræns ávinnings landeiganda og kostnaðar. Að vinnunni komu fulltrúar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Bændasamtaka Íslands, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands, Fuglaverndar og Landgræðslu ríkisins.

Samráðshópurinn leggur til að unnið verði að endurheimt votlendis í samræmi við markmið um losun gróðurhúsalofttegunda, stefnu íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum og Aichi markmið samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Auk þess mælir samráðshópurinn með því að ráðherra feli Landgræðslu ríkisins umsjón með endurheimt votlendis, að fjármagn til framkvæmda verði tryggt og að verklag verði skilgreint. Landbúnaðarháskóli Íslands vinni áfram að því að undirbyggja betur þekkingu á framræslu og áhrifum endurheimtar á losun gróðurhúsalofttegunda með það að markmiði að unnt sé að taka endurheimt votlendis upp sem aðgerð innan Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Loks leggur samráðshópurinn til að framkvæmd og eftirfylgni laga sem varða vernd votlendis og framræslu verði efld. Starfshópurinn leggur áherslu á að skoða þurfi hvert endurheimtarverkefni fyrir sig, meta ávinning þess, áform viðkomandi landeiganda og hvort það samræmist öðrum áformum um landnotkun m.a. skipulagsáætlunum.

Endurheimt votlendis - Aðgerðaáætlun

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum