Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Hagir og líðan aldraðra á Íslandi árið 2016

Hér með eru birtar niðurstöður könnunarinnar Hagir og líðan aldraðra á Íslandi árið 2016 sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir velferðarráðuneytið, Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Landssamband eldri borgara.

Þetta er í fjórða sinn sem könnun á högum og líðan aldraðra er lögð fyrir, en hún var fyrst gerð árið 1999, síðan árið 2006 og í þriðja sinn árið 2012. Í niðurstöðunum sem hér eru birtar má alls staðar sjá þróun þar sem upplýsingar til þess eru fyrir hendi, en einnig hefur verið bætt við nokkrum nýjum spurningum. Tekið var 1800 manna tilviljunarúrtak fólks 67 ára og eldri úr þjóðskrá og spurningar lagðar fyrir ýmist í síma eða með netkönnun. Svarhlutfall var 59%.

Spurningarnar sem lagðar voru fyrir lúta meðal annars að almennu heilbrigði fólks 67 ára og eldri, viðhorfum þess til heilbrigðisþjónustunnar, spurt var um heilbrigðisútgjöld, hvort og hvaða aðstoð fólk fær inn á heimili sitt, eins var spurt um búsetuhagi, atvinnuhagi, fjárhag, félagslega virkni, tölvunotkun og notkun samfélagsmiðla og margt fleira.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum