Hoppa yfir valmynd
2. maí 2017 Dómsmálaráðuneytið

Lögreglumenn og ákærendur fá þjálfun vegna hatursglæpa

Frá námskeiðum um hatursglæpi fyrir lögreglumenn og ákærendur. - mynd

Hópur lögreglumanna og ákærenda hér á landi fékk í síðustu viku þjálfun í að rannsaka hatursglæpi og sækja þá til saka sem grunaðir eru um slík brot. Þjálfunin snerist líka um að miðla þeirri þekkingu til annarra sem sinna löggæslu og fara með ákæruvald.

Námskeiðið fyrir lögreglumenn var haldið í samvinnu við mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar í húsnæði ríkislögreglustjóra og sóttu það níu manns en sex sóttu námskeið fyrir saksóknara sem haldið var í samvinnu við ríkissaksóknara. Þátttakendur voru víðsvegar að af landinu.

Leiðbeinendur á námskeiðunum voru frá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ODIHR) í samræmi við samkomulag sem ODIHR gerði við íslensk stjórnvöld og skrifað var undir í desember síðastliðnum. Stefnt er að því að þessi fræðsla verði fastur liður í menntun og símenntun lögreglumanna og ákærenda.

Alþjóðlegar stofnanir hafa skilgreint hatursglæpi sem brot á almennum hegningarlögum þar sem ásetningur brotsins ræðst að öllu leyti eða hluta til af fordómum gerandans gagnvart brotaþolanum vegna þjóðernis, trúarbragða, kynþáttar, litarháttar, kynhneigðar eða kynvitundar. Þátttakendur á námskeiðunum lýstu ánægju með hvernig til tókst en á þeim var m.a. fjallað um skilgreiningu á hatursglæpum og áskoranir sem mæta rannsakendum og ákærendum í þessum málum. Þá unnu þátttakendur hagnýt verkefni og æfðu sig í að koma þekkingu sinni á framfæri.

Námsefni um hatursglæpi fyrir lögreglumenn og ákærendur hefur verið þýtt á íslensku og vinnur samráðshópur að þessu verkefni. Í honum eiga sæti fulltrúar dómsmálaráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins, ríkissaksóknara, mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar og Mannréttindaskrifstofu Íslands.

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum