Hoppa yfir valmynd
16. júní 2017 Innviðaráðuneytið

Breyting á byggingarreglugerð vegna orkuskipta í samgöngum

Mikilvægt er að huga að rafbílum við hönnun mannvirkja. - myndSigurður Ólafsson/norden.org
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið vinnur nú að því að sett verði í byggingarreglugerð bindandi ákvæði um að í nýbyggingum og við endurbyggingu húsnæðis skuli gert ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla.

Mikil aukning hefur orðið í framboði og sölu rafbíla að undanförnu, en ónógir innviðir geta hamlað þessari þróun. Byggja þarf upp innviði fyrir rafbíla þannig að hægt sé að tryggja aðgengi sem flestra landsmanna að loftslagsvænum samgöngumáta.

Í byggingarreglugerð er ekki fjallað um hleðslu rafbíla en mikilvægt er að þar séu skilgreind markmið og grunnkröfur um slíka hleðslu. Almennt er þetta ekki vandamál við sérbýli en fjölbýlishús þarf hins vegar að hanna með væntanlega aflþörf í huga. Við eldri fjölbýlishús þarf í mörgum tilvikum að gæta að endurbótum til að gera hleðslu rafbíla mögulega. Þá er ljóst að hleðsla rafbíla við vinnustaði getur orðið lykilatriði í að tryggja almenna eign rafbíla.

Mikilvægt er að gera ráð fyrir þessari þróun við hönnun mannvirkja. Með breytingunni verður mun einfaldara fyrir almenning að setja upp slíkan búnað því við hönnun bygginganna er búið að gera ráð fyrir honum.

Með þessari breytingu verður auðvelduð sú þróun varðandi orkuskipti í samgöngum sem ríkisstjórnin leggur áherslu á að verði á næstu árum.

Drög að reglugerðarbreytingu verða til umsagnar á heimasíðu ráðuneytisins á næstunni.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum