Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Málefni hafsins rædd á loftslagsfundi í Bonn

Frá loftslagsráðstefnu SÞ sem lýkur í dag í Bonn. - mynd

Árlegu aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, hinu 23. í röðinni, lýkur í Bonn í Þýskalandi í dag. Málefni hafsins hafa fengið sérstaka athygli á þinginu fyrir forgöngu Fiji, sem fer með formennsku þess. Ísland fagnaði frumkvæði Fiji í innleggi sínu á fundinum og sagði súrnun hafsins eina helstu ógn sem tengdist loftslagsbreytingum.

Eitt helsta verkefni þingsins er að vinna að útfærslu Parísarsamningsins um minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda, sem samþykktur var fyrir tveimur árum. Þar þarf m.a. að ganga frá reglum um bókhald og gagnsæi, svo hægt sé að meta framlög ríkja og árangur á hlutlægan hátt. Stefnt er að ná niðurstöðu í þessum efnum á næsta ári, en flest ríki heims hafa sent inn markmið um hvernig þau hyggjast takmarka losun fram til 2030.

Ísland sagði í ræðu sinni að afleiðingar loftslagsbreytinga væru vel sýnilegar á Íslandi, meðal annars í hopandi jöklum. Eina raunhæfa lausnin til lengdar til að takast á við súrnun hafsins og aðrar birtingarmyndir breytts loftslags væri að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland styddi Parísarsamninginn eindregið og nauðsynlegt væri að hrinda ákvæðum hans í framkvæmd. Hvað Ísland snerti væri nær ekkert jarðefnaeldsneyti brennt til hitunar og rafmagnsframleiðslu, en forgangsmál væri að draga úr losun frá bílum og skipum. Skógrækt, landgræðsla og önnur loftslagsvæn landnotkun væri mikilvægt tæki til ná markmiðum.

Tæplega 20.000 manns sækja fundinn og tengda viðburði í Bonn. Auk samningamanna og fulltrúa ríkisstjórna sækir fjöldi fólks frá félagasamtökum, atvinnulífi og öðrum geirum aðildarríkjafundinn og margs konar kynningar og viðburði sem haldnir eru samhliða.

Ávarp Íslands (pdf-skjal)

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum