Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreint loft til framtíðar – áætlun um loftgæði fyrir Ísland

Keilir  - myndHugi Ólafsson

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út fyrstu almennu áætlunina um loftgæði fyrir Ísland og ber hún heitið Hreint loft til framtíðar.  Áætlunin gildir fyrir árin 2018 – 2029 og er meginmarkmið hennar að stuðla að loftgæðum og heilnæmu umhverfi.

Loftgæðaáætlunin tekur til þeirra þátta er varða loftgæði utandyra. Í henni koma fram mælanleg markmið, upplýsingar um loftgæði og tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. Við vinnslu áætlunarinnar var tekið mið af Landsáætlun um loftgæði, sem var gefin út af Umhverfisstofnun árið 2010 og skýrslunni Hreint loft, betri heilsa – Umfjöllun um loftgæði og heilsufar á Íslandi ásamt tillögum til úrbóta, sem var gefin út af velferðarráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti í apríl 2013.

Í áætluninni er stefnt að því að fækka árlegum ótímabærum dauðsföllum af völdum loftmengunar á Íslandi, fækka árlega fjölda daga þar sem svifryk fer yfir skilgreind heilsufarsmörk af völdum umferðar úr 7-20 skiptum niður í engin skipti fyrir árslok 2029 og að ársmeðaltal brennisteinsvetnis verði áfram undir skilgreindum mörkum.

Áætlun um loftgæði er sett í samræmi við breytingar sem gerðar voru á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir 2013 vegna innleiðingar á evróputilskipun 2008/50/EB um gæði andrúmslofts og hreinna loft í Evrópu.

Þess er vænst að áætlunin stuðli að heilnæmu umhverfi og bættu heilbrigði í landinu þar sem stjórnvöld, atvinnulífið og almenningur eru samstíga í að viðhalda hreinu lofti.

Hreint loft til framtíðar – Áætlun um loftgæði á Íslandi 2018 – 2029 (pdf-skjal)

Samantekt umsagna um áætlunina (pdf-skjal)

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum