Hoppa yfir valmynd
14. desember 2017 Innviðaráðuneytið

Styrkir til rekstrar félagasamtaka á sviði umhverfismála lausir til umsóknar

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir til umsóknar rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðuneytisins. Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00, 15. janúar 2018.

Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála.

Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem tíunduð eru í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.

M.a. þurfa samtökin að vera opin fyrir almennri aðild, þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félagsmenn, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Loks þarf eigin fjáröflun að standa undir a.m.k. helmingi kostnaðar vegna almennrar starfsemi samtakanna.

Þá er í reglunum tíunduð viðmið sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.

  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda auk þess sem hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá.
  • Umsækjendur skrá sig inn og velja umhverfis- og auðlindaráðuneyti undir flipanum Eyðublöð.
  • Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.

Umsækjendur sem hlutu rekstrarstyrk fyrir árið 2017 skulu skila yfirliti yfir ráðstöfun styrksins með umsókninni.

Reglur um úthlutun

Nánari upplýsingar veitir Sóley Dögg Grétarsdóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum