Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir sérfræðingi á skrifstofu almanna- og réttaröryggis
Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á skrifstofu almanna- og réttaröryggis. Felur starfið meðal annars í sér innleiðingu og eftirfylgni aðgerðaáætlunar um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins, stefnumótun og verkefnastýringu.
Auglýsingin fer hér á eftir:
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi sérfræðingi sem hefur áhuga á að starfa með öflugum hópi starfsmanna á skrifstofu almanna- og réttaröryggis. Skrifstofan hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða m.a. mikilvæga þætti réttarvörslukerfisins, þ.e. löggæslu, ákæruvald og fullnustu refsinga.
Starfið felur m.a. í innleiðingu og eftirfylgni aðgerðaráætlunar um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins, stefnumótun og verkefnastýringu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistaragráða skilyrði.
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stefnumótun og verkefnastýringu æskileg.
- Þekking á úrvinnslu tölfræði upplýsinga æskileg.
- Þekking eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar kostur.
- Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Mjög góð þekking á ensku. Þekking á einu norðurlandamáli æskileg.
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins við fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar veitir Guðný E. Ingadóttir, mannauðsstjóri, í síma 5459000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til 22. janúar nk. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið [email protected], merkt sérfræðingur. Ef ekki eru tök á að sækja um rafrænt má senda umsókn til ráðuneytisins að Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.