Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2018 Utanríkisráðuneytið

Lýsti stuðningi við áherslur aðalframkvæmdastjóra SÞ

Guterres og Guðlaugur Þór ræðast við. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í gær fund með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York. Hann hitti einnig Miroslav Lajcak, forseta allsherjarþingsins, og Jeffrey Feltman, yfirmann stjórnmáladeildar Sameinuðu þjóðanna.

Guterres hefur nú verið rúmt ár við stjórnvölinn í Sameinuðu þjóðunum. Á þeim tíma hefur hann beitt sér fyrir yfirgripsmiklum umbótum á starfsemi stofnunarinnar til að gera hana skilvirkari og hraða viðbragðsgetu , enda verkefnin mörg og krefjandi. Á fundi sínum með aðalframkvæmdastjóranum lýsti utanríkisráðherra stuðningi íslenskra stjórnvalda við áherslur Guterres og mikilvægi þess að stofnunin geti sinnt því hlutverki sem hennir er ætlað í að tryggja frið og öryggi og sjálfbæra þróun. Hann benti einnig sérstaklega á mikilvægi þess að aðalframkvæmdastjórinn beiti sér áfram fyrir aukinni virðingu fyrir þjóðarétti og mannréttindum.

„Sameinuðu þjóðirnar eru okkur mikilvægari en margan grunar. Á þeim vettvangi eru öll ríki jafn rétthá og saman geta smáríki staðið vörð um sameiginlega hagsmuni, þ.m.t. virðingu fyrir þjóðarétti sem sjálfstæði okkar er byggt á,“ sagði Guðlaugur Þór. „Heimsmarkmiðin sem við samþykktum fyrir rúmum tveimur árum setja greinilega mark sitt á allt starf stofnunarinnar. Ég var stoltur að geta sagt frá því að samhliða vinnu stjórnvalda að Heimsmarkmiðunum hafi mörg íslensk fyrirtæki einsett sér að vinna að framfylgd þeirra."

Guterres lagði áherslu á að Ísland geti haft mikil áhrif á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þar sem oft sé litið til Íslands sem sáttasemjara, enda sé Ísland forysturíki á sviði jafnréttis og mannréttinda sem njóti trausts. Hann þakkaði einnig mikilvæg framlög til lykilstofnana.
Forseti allsherjarþingsins þakkaði ráðherra framlag Íslands í mannréttindanefnd allsherjarþingins, en Einar Gunnarsson, fastafulltrúi Íslands, gegndi formennsku í nefndinni sl. haust og áframhaldandi ábyrgðarstörfum. Þeir ræddu hlutverk smáríkja innan stofnunarinnar, stuðning við endurbætur aðalframkvæmdastjórans og hvernig heimsmarkmiðin mynda umgjörð um alþjóðlegt samstarf. Framundan eru umræður um endurskoðun samvinnu um ósmitbæra sjúkdóma og fór ráðherra yfir áherslu Íslands á taugasjúkdóma í því sambandi. Þá er ljóst að miklu skiptir að alþjóðlegar samningaviðræður um fólksflutninga, sem framundan eru, skili árangri en þeim á að ljúka á þessu ári.

Stjórnmáladeild Sameinuðu þjóðanna fylgist með þróun mála á átakasvæðum og þar sem hætta er á að til ófriðar komi, veitir aðalframkvæmdastjóra og erindrekum hans ráðgjöf og vinnur að forvörnum og friðarumleitunum um allan heim. Á fundi með Jeffrey Feltman, yfirmanni deildarinnar, var gengið frá samningi um tveggja ára framlag til hennar. Guðlaugur Þór sagði deildina vinna þýðingarmikið starf; takmarkið væri að koma í veg fyrir átök en á meðan þau geisa gegni pólitísk greining og ráðgjöf lykilhlutverki.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum