Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2018 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Drög að lagafrumvarpi til að samræma áætlanir á sviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum ráðuneytisins: Samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun, sem og ný áætlun um stefnu ríkisins á málefnum sveitarfélaga. Unnt er að skoða drögin á samráðsgáttinni um opið samráð stjórnvalda við almenning og senda umsagnir til 1. mars nk.

Vaxandi kröfur eru í stjórnsýslunni og samfélaginu öllu um gerð langtímaáætlana og samþættingu stefnumótunar á ýmsum sviðum. Kallað er eftir því að hagsmunaaðilar fái að taka þátt í ákvörðunum sem hafa áhrif á samfélagið en um leið verður ákvarðanataka sífellt flóknari. Þetta krefst meira gagnsæis í ákvarðanatöku með umfangsmeira samráði með þátttöku almennings, frjálsra félagasamtaka, þrýstihópa og stjórnsýslunnar. Aðkoma fjölda ólíkra hagsmunaaðila gerir stefnumótun flóknari en leiðir jafnframt í ljós þá kosti sem felast í samþættingu áætlana.

Í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu eru þrjú meginsvið sem leggja grunn að innviðum og þjónustu í samfélaginu: sveitarstjórnar- og byggðamál, samgöngur og fjarskipti. Þessi svið mynda eina heild þar sem starfsemi á einu sviði hefur mikil áhrif á hin. Með samþættingu framangreindra áætlana verður því unnt að móta sameiginleg framtíðarsýn og meginmarkmið og hámarka þannig árangur og jákvæð áhrif. Þá verður stefnumótun og áætlanagerð einnig samhæfð þeirri stefnumörkun sem fram fer á grundvelli ákvæða laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.

Nái frumvarpið fram að ganga verða því gerðar sambærilegar áætlanir á hverju framangreindra sviða til fimm og fimmtán ára í senn sem endurskoðaðar verði á þriggja ára fresti hið minnsta. Undirbúningur þeirra verður samræmdur, meðal annars með skipan sambærilegra ráða sem annast undirbúninginn á hverju sviði fyrir sig. Stefnumótandi áætlanir í málefnum sveitarstjórnarstigsins njóta þó ákveðinnar sérstöðu að þessu leyti vegna eðlis málaflokksins. Loks verða færð í viðkomandi lög sambærileg almenn ákvæði um samráð við bæði helstu hagsmunaaðila og almenning sem koma í stað ákvæða um tiltekið samráð á hverju sviði fyrir sig. Með því er stefnt að auknu samráði og samtali við bæði hagsmunaaðila og almenning.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum