Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2018 Innviðaráðuneytið

Samgönguráðherrar funduðu um vegamál í Noregi

Jon George Dale samgöngu- og fjarskiptaráðherra Noregs og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hittust í Osló í kjölfar þings Norðurlandaráðs. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra átti fund með Jon George Dale samgöngu- og fjarskiptaráðherra Noregs sl. föstudag. Fundarefnið var að kynna sér skipulag vegamála í Noregi, útfærslur og breyttar áherslur þeirra í uppbyggingu á vegakerfinu. Sérstaklega var rætt um gjaldtökuleiðir sem Norðmenn hafa tileinkað sér til að hraða uppbyggingu vegakerfisins. Með Sigurði Inga Jóhannssyni var forstjóri Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir, ásamt fulltrúum ráðuneytisins.

Í Noregi eru tvenns konar gjaldtökur í vegakerfinu, annars vegar vegtollar til að mæta allt að helmings kostnaði við uppbyggingu tiltekinna framkvæmda og hins vegar gjaldtaka innan þéttbýlis til að mæta kostnaði við innviðauppbyggingu í tengslum við almenningssamgöngur og til að draga úr mengun af völdum umferðar.

Opinbert hlutafélag sér um stórar framkvæmdir

Þá hafa Norðmenn farið þá leið að færa tilteknar framkvæmdir, á vegum, göngum og brúm, úr höndum norsku vegagerðarinnar og til einkaaðila í því skyni að flýta og hámarka ábata af framkvæmdum. Opinbert hlutafélag Nye Veier AS sér um umfangsmiklar framkvæmdir á völdum svæðum en undirbúningur slíkra framkvæmda er langur og er markmið fyrirtækisins að ná kostnaði niður um 20% að meðaltali. Þá eru tiltekin samvinnuverkefni, líkt og Hvalfjarðargangamódelið, víðsvegar um landið og eru hluti af samgönguáætlun. 

Ráðherra og föruneyti fundaði einnig með fulltrúum Nye Veier AS sem kynntu starfsemi sína nánar og forgangsröðun framkvæmda. Þá var norska vegagerðin heimsótt sem kynnti árangur af samvinnuverkefnum síðastliðinna ára. Ljóst er að á síðustu árum hafa Norðmenn náð góðum árangri á tiltölulegum stuttum tíma sem verðmætt er að horfa til með það að markmiði að nýta þá reynslu sem hefur gefist vel.

Starfshópur skilar tillögum á nýju ári

Starfshópur á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, sem vinnur að því að finna nýjar leiðir í fjármögnun á vegakerfinu, hefur einnig horft til annarra landa, þ.á m. Noregs, og fengið til sín á fundi erlenda sérfræðinga sem hafa frætt og miðlað sinni vitneskju.

Næstu skref eru að starfshópurinn móti tillögur sem miða að því að hraða einstaka framkvæmdum með því að nýta nýjar fjármögnunarleiðir að hluta eða öllu leyti. Einnig var starfshópnum falið að móta tillögur um fjármögnun vegakerfisins til lengri tíma vegna orkuskipta. Starfshópurinn mun skila tillögum sínum til ráðherra í byrjun næsta árs.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum