Hoppa yfir valmynd
17. maí 2019 Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi um leigubifreiðar í samráðsgátt

Drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Markmið með frumvarpinu er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum og tryggja örugga og góða þjónustu fyrir neytendur. Þá er nýjum lögum ætlað að tryggja að íslenska ríkið standi við alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt samningnum um evrópska efnahagssvæðið. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 20. júní 2019.

Frumvarpið byggir að meginstefnu til á tillögum starfshóps um heildarendurskoðun regluverks um leigubifreiðakstur sem skipaður var í október 2017 en skilaði tillögum í formi skýrslu í mars 2018. Núgildandi lög eru frá árinu 2001 en nokkrar breytingar hafa verið gerðar á lögunum frá gildistöku þeirra.

Meðal breytinga sem lagðar eru til eru afnám takmörkunarsvæða og fjöldatakmarkana atvinnuleyfa, afnám skyldu leigubifreiða til að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð og breyttar kröfur til þeirra sem hyggjast starfa sem leigubifreiðastjórar. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að til verði tvær tegundir leyfa sem tengjast akstri leigubifreiða. Atvinnuleyfi mun veita réttindi til að aka leigubifreið í eigu rekstrarleyfishafa í atvinnuskyni, rekstrarleyfi mun veita réttindi til að reka eina leigubifreið sem er í eigu rekstrarleyfishafa eða skráð undir umráðum hans og aka til að aka henni í atvinnuskyni.

Gerðar eru breytingar á skilyrðum til að mega reka leigubifreiðastöð og rekstrarleyfishöfum heimilað að framselja hluta af skyldum sínum með samningi til leigubifreiðastöðvar.

Einnig er gert ráð fyrir því að heimilt verði að aka án þess að gjaldmælir sé til staðar í bifreið í þeim tilfellum þegar samið hefur verið fyrir fram um heildarverð fyrir ekna ferð. Þá er gert ráð fyrir því að gera megi ólíkar kröfur til merkinga bifreiða eftir því hvort þær séu búnar gjaldmæli eða ekki.

Skoða drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar í samráðsgátt

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum