Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2019 Innviðaráðuneytið

Samgöngubætur á Austurlandi með hringtengingu ganga

Verkefnishópur skipaður af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skilað skýrslu um Seyðisfjarðargöng. Niðurstaða hópsins er að með hliðsjón af ávinningi samfélags og atvinnulífs á Seyðisfirði og Austurlandi í heild sé vænlegast að rjúfa einangrun Seyðisfjarðar með jarðgöngum undir Fjarðarheiði og styrkja samfélagið á Austurlandi öllu með tvennum göngum milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar annars vegar og Mjóafjarðar og Norðfjarðar hins vegar á síðari stigum. Slík hringtenging færi samfélaginu á Austurlandi miklar samgöngubætur.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnir skýrsluna á opnum íbúafundi á Hótel Héraði á Egilsstöðum kl. 18 í kvöld. Skýrslan var einnig kynnt á fundi með sveitarstjórnarfólki á Austurlandi í morgun.

Lengstu göng Íslands

Göng undir Fjarðarheiði yrðu lengstu göng Íslands, eða 13,4 km. Verkefnishópurinn áætlar að kostnaður vegna þeirra geti numið um 33-34 milljörðum króna en nákvæm kostnaðargreining hefur ekki verið unnin. Heildarkostnaður við hringtengingu með göngum undir Fjarðarheiði og síðar yfir í Mjóafjörð og Norðfjörð er áætlaður um 64 milljarðar kr. Samanlögð lengd þriggja ganga í hringtengingu er 25,7 km. Vegir utan ganga yrðu samtals um 6-8 km. Með því væri hægt að fara láglendisveg alla leið til Egilsstaða í stað leiðarinnar um Fagradal auk þess sem vegalendir styttast fyrir byggðir á fjörðunum.

Í skýrslu sinni telur hópurinn veggjöld vera fýsileg fyrir göng af þessu tagi og að íbúar hafi lýst sig reiðubúna til að greiða veggjöld. Verkefnishópurinn telur tekjur af veggjaldi geta staðið undir rekstri og viðhaldi ganganna en myndu skila litlu sem engu í stofnkostnað.

Fjórir ólíkir kostir metnir

Verkefnishópurinn mat fjóra ólíka valkosti um mögulegar samgöngubætur í skýrslu sinni. Þessar greiningar fylgja skýrslunni. Valkostirnir fjórir voru:

  • Valkostur 1 – Jarðgöng undir Fjarðarheiði.
  • Valkostur 2 – Jarðgöng undir Fjarðarheiði ásamt göngum til Mjóafjarðar og göngum þaðan til Norðfjarðar.
  • Valkostur 3 – Jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar, önnur undir Mjóafjarðarheiði milli Mjóafjarðar og Héraðs og þau þriðju milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar.
  • Valkostur 4 – Jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og önnur milli Mjóafjarðar og Héraðs.

Samfélagsleg áhrif

Verkefnishópurinn fól ráðgjafafyrirtækinu KPMG að gera sérstaka könnun á samfélagslegum áhrifum þar sem gerð er grein fyrir sviðsmyndum um áhrif ólíkra valkosta jarðgangagerðar. Tekin voru viðtöl við íbúa og hagsmunaaðila á Austurlandi haustið 2018 og fram á þetta ár. Þar kom fram að vilji Austfirðinga standi til þess að Fjarðarheiðargöng verði sett í forgang. Í því væri m.a. horft til þess að síðar verði hægt að grafa önnur göng til að mynda hringtengingu.

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) ályktaði haustið 2018 að jarðgöng undir Fjarðarheiði væru „forgangsverkefni í jarðgangagerð á Austurlandi, enda aðstæður íbúa á Seyðisfirði slíkar á vetrum að ekki verður við það unað lengur.“

Rannsóknir á jarðfræðilegum aðstæðum lágu fyrir vegna fyrri athugana á jarðgangakostum. Verkefnishópurinn lét á hinn bóginn gera athugun á veðuraðstæðum við helstu jarðgangakosti.

Í verkefnishópnum sátu Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri fram til 1. júlí 2018 , formaður, Adolf Guðmundsson, lögfræðingur, Arnbjörg Sveinsdóttir, sem var forseti bæjarstjórnar Seyðisfjarðarkaupstaðar fram til 2018, Jóna Árný Þórðardóttir, löggiltur endurskoðandi og Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður hjá Byggðastofnun. Með hópnum störfuðu Sigurbergur Björnsson skrifstofustjóri og Friðfinnur Skaftason sérfræðingur úr samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Valtýr Þórisson, forstöðumaður áætlana hjá Vegagerðinni.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum