Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2019 Innviðaráðuneytið

Tæpum fimmtán milljónum úthlutað til verslunar í strjálbýli

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Að þessu sinni var 14,9 milljónum króna úthlutað til verslunar í strjálbýli fyrir árin 2019 og 2020 en alls voru gefin fyrirheit um styrki að upphæð 20,6 milljónum króna á árunum 2019-2021. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum.

Markmið með framlögunum er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustukjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin eiga að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, til dæmis með samspili við aðra þjónustu, breyttri uppsetningu í verslunum og bættri aðkomu.

Alls bárust sjö umsóknir og var sótt um samtals kr. 41.549.550.00 fyrir árin 2019-2020. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. 

Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Búðin Borgarfirði eystri. Gusa ehf. hlýtur styrk að heildarupphæð 5 m.kr. til þriggja ára eða 2 m.kr. árið 2019, 2,1 m.kr. árið 2020 og 900 þúsund árið 2021.
  • Pöntunarþjónusta Hafnartanga, Bakkafirði. Verkefnið fær styrk að upphæð kr. 1,5 m.kr. árið 2019.
  • Brekkan Stöðvarfirði. Ástrós ehf. hlýtur styrk að heildarupphæð 6 m.kr. eða 2 m.kr. á ári í þrjú ár 2019-2021. 
  • Skerjakolla ehf., Kópaskeri.Verslunin hlýtur styrk að upphæð 2,3 m.kr.
  • Verslun á Drangsnesi. Umsækjandi er óstofnað félag um rekstur verslunar. Samþykkt hefur verið að styrkja verkefnið um 4,8 m.kr. eða 2 m.kr. árið 2020 og 2,8 m.kr. árið 2021. Styrkurinn er háður því skilyrði að gögn liggi fyrir eða samningur og að Kaupfélagið loki verslun á Drangsnesi.
  • Verslun í Ásbyrgi. Verslunin hlýtur styrk að upphæð 1 m.kr. árið 2019.

Í valnefndinni sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Magnús Karel Hannesson, fv. sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem er formaður nefndarinnar. Með valnefnd störfuðu Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum