Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2020 Forsætisráðuneytið

Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins

Niðurstöður könnunar á stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins. Könnunin, var framkvæmd í desember 2019 og janúar 2020 og byggð á sama grunni og fyrri kannanir sem framkvæmdar voru árin 2015 og 2017. Þátttakendur í könnuninni voru ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar auk valinna sérfræðinga úr öllum ráðuneytum.

Helstu niðurstöður gefa til kynna að nauðsynlegt sé bæta innleiðingu og framkvæmd stefna og áætlana og styrkja eftirfylgni þótt sýnilegur árangur hafi náðst. Tvöfalt fleiri telja nú að líklegt sé að stefnur komist til framkvæmda en 2015. Jafnframt þarf að huga betur að samhæfingu og samræmingu innan og á milli ráðuneyta. Helstu veikleikarnir við stefnumótun og áætlanagerð eru takmarkaður tími og skortur á mannafla.

Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum