Hoppa yfir valmynd
15. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Jón Höskuldsson og Ragnheiður Bragadóttir skipuð dómarar við Landsrétt

Ragnheiður Bragadóttir og Jón Höskuldsson - mynd

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Jón Höskuldssonar í embætti dómara við Landsrétt frá 25. september 2020. Jafnframt hefur dómsmálaráðherra ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um að Ragnheiður Bragadóttir verði skipuð í embætti dómara við Landsrétt frá 18. september 2020.

Jón Höskuldsson starfaði í landbúnaðarráðuneytinu árin 1984 - 1998 en eftir það sem sjálfstætt starfandi lögmaður allt til ársins 2010. Þann 15. maí 2010 var Jón skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjaness og hefur hann gegnt því starfi síðan, þar af sem dómstjóri frá 13. nóvember 2019. Þá hefur hann sinnt öðrum störfum, s.s. formennsku í yfirmatsnefnd samkvæmt ábúðarlögum og formennsku í dómstólaráði.

Ragnheiður Bragadóttir starfaði m.a. sem dómarafulltrúi og sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands árin 1989-2001, en þar af sem settur héraðsdómari frá 15. janúar 1999 – 30. júní 2001. Ragnheiður var sjálfstætt starfandi lögmaður frá árinu 2002 – 2005 eða allt þar til hún var skipuð héraðsdómari 15. september 2005. Því starfi gegndi hún, lengst af við Héraðsdóm Reykjaness, allt þar til hún var skipaður dómari við Landsrétt frá 1. janúar 2018. Þá hefur Ragnheiður sinnt ýmsum öðrum störfum, svo sem setu í samkeppnisráði og í stjórn Lögmannafélags Íslands.

Við skipun Jóns og Ragnheiðar losnar eitt embætti héraðsdómara og eitt embætti dómara við Landsrétt. Þau embætti verði auglýst laus til umsóknar innan tíðar.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum