Hoppa yfir valmynd
29. október 2020 Innviðaráðuneytið

Ísland undirritar yfirlýsingu um samgöngur framtíðarinnar

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á fjarfundi evrópskra samgönguráðherra í dag. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirritaði í dag sameiginlega yfirlýsingu evrópskra samgönguráðherra um að efla samgöngur til framtíðar með aukinni stafvæðingu og sjálfvirkni. Markmið yfirlýsingarinnar er að bæta samgöngur framtíðarinnar með því að nýta stafrænar tæknilausnir, framfarir í fjarskiptum, aukna sjálfvirkni og samnýta stafræn gögn um samgöngur þvert á landamæri.

Yfirlýsingin, sem gengur undir heitinu Passau-yfirlýsingin (Passau Declaration), var kynnt og samþykkt á fjarfundi evrópskra samgönguráðherra sem haldinn var í dag. Þjóðverjar voru gestgjafar fundarins þar sem þeir eru í forsæti í ráðherraráði ESB.

Í ávarpi sínu á fundi samgönguráðherranna sagði Sigurður Ingi að Ísland styddi heilshugar markmið Passau-yfirlýsingarnar um að skapa öruggari, sjálfbærari, umhverfisvænni og greiðari samgöngur með stafrænni umbyltingu á samgönguinnviðum og í þjónustu við þá sem þurfa að komast á milli staða. Framtíðarsýn í samgöngum væri kynnt í metnaðarfullri samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 sem Alþingi hafi samþykkt í sumar. Þar væru skýr markmið um að nýta tækniþróun og nýjustu fjarskiptatækni til að efla þjónustu í grunnneti samgangna á Íslandi.

Í yfirlýsingunni eru fimm lykilmarkmið í jafnmörgum efnisköflum:

  • Fólk verði ávallt í fyrirrúmi  (e. Place people at center stage) 
  • Samgönguinnviðir efldir með stafvæðingu (e. Expand the digital infrastructure and make mobility infrastructure smart) 
  • Sjálfvirkni aukin í öllum samgöngumátum (e. Promote automation in all modes of transport) 
  • Stafræn gögn um samgöngur aukin og samhæfð þvert á landamæri  (e. Strengthen smart connectivity - towards a European mobility data space ecosystem)
  • Nýsköpun í stafrænum samgöngum efld  (e. Promote innovations for digital and virtual mobility)

Fundir evrópskra samgönguráðherra eru að jafnaði haldnir einu sinni á ári en að þessu sinni var haldinn fjarfundur með þátttöku ríkja á EES-svæðinu.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum