Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Styrkir til verkefna og rekstrar lausir til umsóknar

Horft til Snækolls - myndHugi Ólafsson

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og rekstrarstyrkja til félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til kl. 16:00 6. janúar 2021. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Styrkir til verkefna

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir árlega styrki til verkefna sem falla undir málefnasvið þess. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna á vegum aðila utan ríkisstofnana og er heildarfjárhæð til úthlutunar 56 m.kr. en hver einstakur styrkur getur aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur 10% af heildarstyrkfjárhæð hvers árs.

Auk almennra verkefna á málefnasviði ráðuneytisins er við úthlutun lögð áhersla á samstarfsverkefni sem lúta að eflingu hringrásarhagkerfisins og loftslagsmálum. Vakin er athygli á því að Loftslagssjóður úthlutar styrkjum til verkefna sem miða að fræðslu til loftslagsmála.

Með samstarfsverkefni er átt við verkefni þar sem félagasamtök, almenningur og/eða aðrir taka höndum saman um tiltekið verkefni.

Umsækjendur skulu merkja við á eyðublaði hvort sótt er um vegna áhersluverkefnis eða verkefnis um önnur umhverfismál.

Ráðuneytið veitir eingöngu styrki til verkefna sem sannarlega falla undir verkefnasvið þess og áskilur sér rétt til að áframsenda umsóknir til annarra ráðuneyta eða stofnana, í samræmi við leiðbeiningaskyldu stjórnvalda, falli verkefni betur að málaflokkum þeirra. Athygli er vakin á að ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hafa fjárhagslegan ávinning að markmiði fyrir umsækjanda. Hvorki eru veittir styrkir fyrir meistaraprófs- eða doktorsverkefni né rannsókna- eða vöktunarverkefni sem falla undir lögbundin verkefni stofnana ríkisins.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.
Upplýsingar um mat á umsóknum er að finna í 6. gr. úthlutunarreglna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Reglur um úthlutun verkefnastyrkja

Almennir rekstrarstyrkir til félagasamtaka

Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála. Heildarfjárhæð til úthlutunar árið 2021 er 49 m.kr.

Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.

M.a. þurfa samtökin að hafa umhverfismál sem eitt af meginmarkmiðum félagsins skv. samþykktum þess, vera opin fyrir almennri aðild einstaklinga eða félagasamtaka (sé um regnhlífarsamtök að ræða), þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félaga, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Þá er í reglunum sett fram viðmið sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.

Umsækjendur sem hlutu rekstrarstyrk fyrir árið 2020 skulu skila yfirliti yfir ráðstöfun styrksins með umsókninni.

Reglur um úthlutun almennra rekstrarstyrkja til félagasamtaka

Sótt um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá. Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Vakin er athygli á því að eyðublaðavefur stjórnarráðsins verður lokaður vegna uppfærslu og breytinga dagana 16. og 17. desember og því verður ekki unnt að senda inn umsókn um verkefna- og rekstrarstyrki tá meðan á því verki stendur.

Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.

Nánari upplýsingar veitir Sóley Dögg Grétarsdóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum