Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Upplýsingasíða vegna Seyðisfjarðar

Mynd/Veðurstofa Íslands - mynd

Sett hefur verið upp sérstök upplýsingasíða á vefsvæðinu Ísland.is vegna hamfaranna sem urðu á Seyðisfirði í desember sl. Þar er að finna upplýsingar um verkefni á vegum stjórnvalda og ýmissa stofnana sem þegar eru í framkvæmd og eru fyrirhuguð vegna hamfaranna.

Upplýsingasíðan er á vegum starfshóps sem ríkisstjórnin skipaði til að fylgja eftir málum er varða aðkomu ríkisins að hreinsun á svæðinu og öðrum aðgerðum sem styðja við að koma samfélaginu í starfhæft horf á ný. Í starfshópnum eiga sæti fulltrúar sex ráðuneyta en auk þess starfa með hópnum Víði Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild embættis ríkislögreglustjóra og Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar og tengiliður við sveitarfélagið Múlaþing.

Á upplýsingasíðunni er að finna svör við ýmsum spurningum vegna hamfaranna og verða svör uppfærð í samræmi við nýjustu upplýsingar. Þá munu svör við nýjum spurningum bætast við eftir því sem þurfa þykir.

Upplýsingasíða vegna hamfaranna á Seyðisfirði

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum