Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2021 Innviðaráðuneytið

Grænbók um samgöngumál kynnt í samráðsgátt

Grænbók um samgöngumál, þar sem metin er staða málaflokksins og lagður grundvöllur fyrir endurskoðaða stefnumótun í samgöngum til fimmtán ára, hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um grænbókina en frestur til að skila umsögn er til og með 10. ágúst 2021.

Grænbók um samgöngumál er hluti af stefnumótunarferli samgönguáætlunar. Samgönguáætlun er unnin á grunni laga um samgönguáætlun, nr. 33/2008. Stöðumat grænbókarinnar byggir m.a. á upplýsingum frá framkvæmdaraðilum, þ.e. stofnunum ráðuneytisins og Isavia. Þá er í grænbókinni einnig byggt á nýjum greiningum, svo sem varðandi börn og samgöngur, jafnrétti í samgöngum, vöruflutninga, vinnusóknarsvæði, arðsemi umferðaröryggisaðgerða og aðlögun samgangna að loftslagsbreytingum.

Annar grundvöllur stöðumatsins er samtal við landsmenn og hagsmunaaðila. Átta opnir fundir voru haldnir víðsvegar um landið í mars og apríl í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga. Jafnframt voru haldnir fundir með öðrum ráðuneytum og samstarfsaðilum, þar sem snertifletir samgönguáætlunar við aðrar áætlanir stjórnarráðsins voru ræddir.

Grænbókin er umræðuskjal og er almenningi og haghöfum boðið að leggja fram sín sjónarmið í stefnumótuninni. Sérstaklega er kallað eftir umræðu um stöðumat grænbókar, lykilviðfangsefni, forgangsröðun, mælikvarða og framtíðarsýn samgangna.

Um er að ræða fyrstu grænbókina sem tekin hefur verið saman um samgöngumál í samræmi við stefnumótunarferli Stjórnarráðsins og samræmingu áætlana á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála. Markmið grænbókarinnar er að hvetja til umræðu um stöðumat, viðfangsefni og framtíðarsýn í samgöngumálum sem og um áherslur og valkosti. 

Að loknu samráði eru niðurstöður dregnar saman og grænbókin gefin út. Í kjölfarið verður hafin vinna við mótun stefnu sem inniheldur framtíðarsýn fyrir málaflokkinn og markmið sem marka leiðina ásamt áherslum (hvítbók).

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum